Fimmtugur karlmaður, Simon Vickers, var í dag fundinn sekur um að hafa myrt 14 ára gamla dóttur sína, Scarlett, eftir að hafa stunngið hana í hjartastað. Meirihluti kviðdóms taldi Vickers sekan og verður refsing kveðinn upp 10. febrúar, en hann gæti átt lífstíðarfangelsi yfir höfði sér.
Við réttarhöld í málinu hélt Vickers því fram að einkabarn hans hafi dáið í slysi á heimili þeirra í Darlington, Durham-sýslu í Bretlandi eftir að hann kastaði óvart hníf í hana.
Ákæruvaldið hélt því hins vegar fram að hann hefði vísvitandi stungið dóttur sína vegna þess að 11 sm sárið á brjósti hennar væri of djúpt til að geta hafa orðið til fyrir slysni.
Scarlett lést 5. júlí 2024 eftir að hnífsblaðið skarst í brjóst hennar og hjarta.
Eftir að hann var sakfelldur birti lögreglan myndefni sem sýnir Vickers settan í gæsluvarðhald þar sem hann kvartar og segist vera á leið í frí eftir sex vikur. Einnig heldur hann því fram að dauði dóttur sinnar væri slys.
„Ég vil bara vita hvernig dóttir mín hefur það. Við vorum að fíflast og leika okkur í eldhúsinu og af einhverjum ástæðum hefur þetta verið mjög skrítið. Við vorum að grínast.. Ég trúi þessu ekki. Segið mér. Hvað er í gangi? Við erum að fara í frí til f***** g Gran Canaria eftir sex vikur. F***** g helvíti. Ég trúi því ekki að þetta sé að gerast. Við vorum að útbúa te. Bara að fíflast í eldhúsinu. Ég skil ekki hvernig þetta hefur gerst. Í alvöru.“
Dómarar heyrðu líka hvernig hann sagði lögreglu við handtöku sína: „Ég hlýt að vera óheppnasti maður í heimi“.
Saksóknari sagði frásögn Vickers af dauða dóttur sinnar vera „algjörlega í ósamræmi“ við sönnunargögnin og að sárið hefði aðeins getað verið veitt ef hnífnum sem notaður var „var beitt með afli“.
Neyðarlínan var kölluð að tvíbýlishúsi fjölskyldunnar í skömmu fyrir klukkan ellefu að kvöldi til þann 5. júlí 2024. Viðbragðsaðilar fundu Scarlett þar sem henni var að blæða út á eldhúsgólfinu og endurlífgunartilraunir báru ekki árangur.
Vickers sagði lögreglunni að feðgini hefðu verið að fíflast á meðan kona hans og móðir Scarlett, Sarah Hall, var að elda kvöldmatinn.
„Við byrjuðum að kasta hlutum í hvort annað.“
Jennifer Bolton, réttarmeinafræðingur, sem framkvæmdi krufninguna sagði fyrir dómi að möguleikinn á hnífstungu fyrir slysni væri „nánast ómögulegur“, nífnum hlyti að hafa verið „haldið þétt“ til að hann hefði náð í gegnum náttföt og brjóstkassa Scarlett.
Scarlett birti TikTok myndband sem sýnir hana stilla sér upp í svefnherbergisspeglinum sínum nokkrum klukkustundum áður en hún lést.
Engin ástæða fyrir morðinu var sett fram af saksóknara, sem sagði að Vickers hlyti að hafa verið að ljúga að lögreglu vegna þess að frásögn hans var ekki í samræmi við niðurstöður réttarmeinafræðingsins.
Vickers, sem viðurkenndi að hafa drukkið fjögur rauðvínsglös og reykt hálfa jónu þetta kvöld neitaði því að hafa vísvitandi skaðað einkabarn sitt. Hann sagði að fjölskyldan hefði verið í góðu skapi og hlakkaði til sumarfrísins á Gran Canaria.
Setti Vickers fram þá kenningu að Scarlett hefði óvart rekist í hnífinn eftir að hann „stóð út yfir borðbrúnina“.
Móðir Scarlett hringdi á neyðarlínuna og má heyra hana segja: „Dóttir mín, hún er á gólfinu, hún er að missa töluvert af blóði. Ég veit ekki hvað gerðist. Hún er að missa meðvitund.“ Í bakgrunninum má heyra Vickers öskra: „Scarlett, Scarlett, talaðu við mig Scarlett. „Guð minn góður, hún er orðin blá.“
Saksóknarinn sagði í lokaræðu sinni: „Þetta fór langt út fyrir einhvern leik og Vickers hefði átt gera sér grein fyrir því að hætta væri á því í þessu litla eldhúsi að valda alvarlegum meiðslum með hníf.“
Verjandi Vickers, sagði dauða Scarlett „hörmulegt, hörmulegt slys.“ Hún var eina barnið þeirra. Hann hafði enga ósk eða löngun til að skaða hana á nokkurn hátt. Fjölskyldan var að eiga venjulegt föstudagskvöld heima. Feðginin voru að fíflast á venjulegan og fjörugan hátt, þegar Vickers áttaði sig skyndilega á því að Scarlett hafði slasast. Hún hlýtur að hafa komist í snertingu við beittan hníf og hún lést fljótt í kjölfarið.“
Craig Rudd, lögreglustjóri í Durham, sagði: „Scarlett Vickers hefði haldið upp á 16 ára afmæli sitt á þessu ári. Hún átti allt lífið framundan. Það var grimmilega tekið frá henni af föður hennar – manni sem var ætlað að vernda hana. Við vitum kannski aldrei hvers vegna eða hvað varð til þess að Simon Vickers gerði það sem hann gerði um kvöldið. Dómurinn í dag mun því miður ekki færa okkur Scarlett til baka, en hann mun nú horfast í augu við afleiðingar gjörða sinna. Mig langar til að þakka rannsóknarteyminu mínu fyrir þrotlausa vinnu til að fá réttlæti fyrir Scarlett og samfélaginu fyrir samstarfið og skilninginn á meðan við rannsökuðum málið. Hugur okkar er hjá þeim sem þótti vænt um Scarlett.“