fbpx
Sunnudagur 19.janúar 2025
Pressan

Þess vegna er alltaf ryk heima hjá þér

Pressan
Sunnudaginn 19. janúar 2025 07:30

Þrif eru endalaus barátta. Mynd:Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það pirrar marga að það virðist ekki skipta neinu máli hversu oft þeir þrífa og þurrka af. Rykið kemur aftur nánast um leið. Mjög góð þrif hjálpa kannski aðeins en oft eru þau bara eins og að setja plástur á sár í smá stund.

Ryk á heimilum er ekki bara ófögur sjón, það getur einnig haft heilsufarslegar afleiðingar, sérstaklega fyrir þá sem eru með ofnæmi og öndunarfærasjúkdóma.

Rykið kemur líklega víða að og það sem við tökum okkur fyrir hendur heima hjá okkur skiptir einnig máli. Þetta sagði Marla Mock, forstjóri þrifafyrirtækisins Molly Maid, í samtali við Southernliving.

Hún sagði að ryk samanstandi af blöndu af ögnum á borð við dauðar húðfrumur, hár, frjókornum og textíltrefjum.

Ef maður gerir hreint reglulega, þá hjálpar það auðvitað til við að halda rykinu niðri en það þarf samt sem áður meira til en tíða notkun afþurrkunarklútsins.

Á sumum heimilum kemur rykið hratt ef loftræstingin er léleg. Loftflæðið getur hjálpað til við að draga úr ryksöfnun. Mock ráðleggur fólki að opna glugga eða nota viftur en bendir einnig á að það þarf að hreinsa blöðin í viftunum svo þær dreifi ekki bara ryki.

Ytri þættir skipta einnig máli. Í hvert sinn sem við göngum inn í hús, fylgir ryk, frjókorn og mengun með á skónum okkar og fatnaði. Forstofan verður því að mikilvægri uppsprettu ryks.

Mock ráðleggur fólki því að fara ekki inn á skónum og nota dyramottu til að draga úr því magni agna sem berast inn í húsið.

Óþéttir gluggar og dyr geta einnig gert ryksöfnunina meiri því ryk kemst inn í húsið vegna þess að gluggarnir og dyrnar eru óþéttar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

YouTube-stjarnan Mr. Beast vill bjarga Bandaríkjamönnum frá TikTok-banni

YouTube-stjarnan Mr. Beast vill bjarga Bandaríkjamönnum frá TikTok-banni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Norðmenn auka hamfaraviðbúnað sinn – Byggja neyðarrými og koma sér upp kornbirgðum

Norðmenn auka hamfaraviðbúnað sinn – Byggja neyðarrými og koma sér upp kornbirgðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Vara við sjúkdómi sem hefur smitað níu og drepið átta á skömmum tíma

Vara við sjúkdómi sem hefur smitað níu og drepið átta á skömmum tíma
Pressan
Fyrir 3 dögum

Gera grín að konunni sem taldi sig vera í ástarsambandi með Brad Pitt

Gera grín að konunni sem taldi sig vera í ástarsambandi með Brad Pitt
Pressan
Fyrir 4 dögum

Vaxandi áhyggjur af að skjöl varðandi Elísabetu II verði ritskoðuð

Vaxandi áhyggjur af að skjöl varðandi Elísabetu II verði ritskoðuð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Datt í lukkupottinn þegar hann gramsaði í ruslatunnunni sinni

Datt í lukkupottinn þegar hann gramsaði í ruslatunnunni sinni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sænski herinn og Saab afhjúpa leynilegt verkefni

Sænski herinn og Saab afhjúpa leynilegt verkefni