Konan, hin 53 ára Anne frá Frakklandi, steig fram í þarlendum þætti á dögunum þar sem fram kom að hún hefði tapað 830 þúsund evrum, rúmum 120 milljónum króna, í umræddri svikamyllu á netinu.
Átti hún í samræðum við mann sem þóttist vera Brad Pitt og millifærði hún upphæðina á hann yfir 18 mánaða tímabil. Eins og sjá má hér að ofan og neðan notaðist svikahrappurinn við lítt sannfærandi myndir þar sem meðal annars mátti sjá Pitt í sjúkrarúmi.
„Það var leikið á mig, ég viðurkenni það, og þess vegna stíg ég fram. Ég er ekki sú eina sem hef lent í þessu,“ sagði hún.
Í frétt BBC kemur fram að Anne hafi verið skotspónn margra á samfélagsmiðlum síðustu daga þar sem fólk ýmist gerir lítið úr henni eða gerir grín að hanni. Varð þetta til þess að þátturinn þar sem viðtalið við hana var sýnt var tekið úr birtingu.
Franska knattspyrnuliðið Toulouse gerði til dæmis grín að henni í færslu á X sem nú hefur verið eytt. „Hæ Anne. Brad sagði að hann yrði á vellinum á miðvikudag, ætlar þú að koma?“ sagði í færslunni. Félagið eyddi færslunni skömmu síðar og baðst afsökunar.
Í þættinum kom fram að martröð Anne hafi byrjað í febrúar 2023 þegar hún stofnaði Instagram-reikning og náði í smáforritið í símann sinn.
Ekki leið á löngu þar til hún fékk skilaboð frá einstaklingi sem sagðist vera móðir Brad Pitt og tjáði henni að sonur hennar þyrfti á konu eins og henni að halda.
Daginn eftir fékk hún svo skilaboð frá manni sem þóttist vera Brad Pitt og þá fóru hjólin heldur betur að snúast. Hann sagðist til dæmis ætla að senda henni flottar gjafir en vegna skilnaðar hans og Angelinu Jolie gæti hann ekki borgað fyrir flutninginn. Millifærði hún 9.000 evrur í það skiptið.
„Eins og kjáni þá borgaði ég í hvert einasta sinn. Í hvert skipti sem ég sagðist efast tókst honum að sannfæra mig um að þetta væri hann,“ segir hún.
Anne var í hjónabandi þegar hún kynntist svikaranum en þau skildu ekki löngu síðar. Við skilnaðinn fékk Anne helminginn af eignum þeirra hjóna, 775 þúsund evrur, en í þættinum lýsti hún að allur hennar peningur hefði farið í svikahrappinn og hún standi nú eftir með tvær hendur tómar.