fbpx
Fimmtudagur 13.mars 2025
Pressan

Arfleiddi lítinn franskan bæ að 10 milljónum evra – Kom aldrei þangað í lifanda lífi

Pressan
Miðvikudaginn 15. janúar 2025 22:00

Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að íbúar í franska bænum Thiberville, sem er í Normandí, hafi ekki trúað eigin augum og eyrum þegar fréttir bárust af stórum arfi til bæjarins. Maður einn, búsettur í París, arfleiddi bæinn að 10 milljónum evra, sem er fimmfalt hærri upphæð en rekstrarkostnaður bæjarins á ári hverju.

Maðurinn, sem hét Roger Thiberville, náði aldrei að heimsækja bæinn á langri ævi sinni en eins og lesendur hafa örugglega áttað sig á, þá var fjölskyldunafn hans það sama og nafn bæjarins.

Hann var kominn af fjölskyldu vínræktenda og erfði húseign í París frá foreldrum sínum. Hann starfaði sjálfur sem veðurfræðingur.

Hann lést 91 árs að aldri í ágúst síðastliðnum. Hann átti enga afkomendur.

Skömmu eftir andlát hans var hringt í bæjarstjórann í Thiberville, þar sem 1.773 búa, og honum var tilkynnt að Thiberville hefði arfleitt bæinn að megninu af 10 milljóna evra auði sínum. The Guardian skýrir frá þessu.

Guy Paris, bæjarstjóri, sagðist vera himinlifandi yfir þessu og nú væri verið að íhuga hvernig eigi að nota peningana. Hér sé um mjög háa upphæð að ræða, hærri en hægt sé að ímynda sér.

Hann sagði að nú þegar hafi verið ákveðið að nota ekki alla upphæðina. Ráðstöfun hennar verði byggð á ráðdeild eins og sé gert í rekstri bæjarfélagsins. Þar sem bæjarfélagið er opinber aðili, þarf það ekki að greiða erfðafjárskatt.

Ætlunin er að greiða upp bankalán upp á 400.000 evrur sem var tekið til að greiða fyrir byggingu nýs grunnskóla.

Paris sagði að einu tengsl Thiverville við bæinn sé nafnið. Hann viti að hann hafi lifað „hófsömu lífi í París“ en þar átti hann fjórar íbúðir. Engar ljósmyndir eru til af honum, svo vitað sé.

Thiberville setti engin skilyrði fyrir arfinum en hann óskaði eftir því að ösku hans yrði komið fyrir í minningarreit í kirkjugarði bæjarins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Sakfelld fyrir að hafa ætlað að ræna völdum í Þýskalandi og ræna heilbrigðisráðherranum

Sakfelld fyrir að hafa ætlað að ræna völdum í Þýskalandi og ræna heilbrigðisráðherranum
Pressan
Í gær

Þrír Indverjar teknir af lífi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum

Þrír Indverjar teknir af lífi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elon Musk hefur tapað rúmlega 120 milljörðum dollara á þremur mánuðum

Elon Musk hefur tapað rúmlega 120 milljörðum dollara á þremur mánuðum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Bað gervigreind Elon Musk að reikna líkurnar á því að Trump sé rússneskur útsendari – Þetta var svarið

Bað gervigreind Elon Musk að reikna líkurnar á því að Trump sé rússneskur útsendari – Þetta var svarið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Dularfullt hvarf manns sem sagðist vera að fara um borð í geimskip – Hefur ekki sést síðan

Dularfullt hvarf manns sem sagðist vera að fara um borð í geimskip – Hefur ekki sést síðan
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leynigöng í London verða opnuð almenningi

Leynigöng í London verða opnuð almenningi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Óðinn er farinn af stað í merkan leiðangur

Óðinn er farinn af stað í merkan leiðangur
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hún hvarf sporlaust í skemmtisiglingunni – Síðan kom tölvupósturinn sem fékk mjög á foreldrana

Hún hvarf sporlaust í skemmtisiglingunni – Síðan kom tölvupósturinn sem fékk mjög á foreldrana