Systurnar, Eliza og Henriette Huszti, eru 32 ára en síðast spurðist til þeirra í Aberdeen á þriðjudag í síðustu viku. Eliza og Henrietta eru fæddar í Ungverjalandi en hafa verið búsettar í Skotlandi síðustu sjö ár.
Í frétt breska ríkisútvarpsins, BBC, kemur fram að systurnar hafi sést á eftirlitsmyndavélum skammt frá brú í miðborginni klukkan 02:12 aðfaranótt þriðjudagsins. Ekkert bendi til þess að systurnar hafi farið úr miðborginni og hefur leitin þar af leiðandi beinst að ánni Dee sem rennur í gegnum borgina.
Breskir fjölmiðlar hafa eftir aðstandendum systranna að þær komi frá samheldinni fjölskyldu og það hafi verið úr karakter fyrir þær að vera úti um miðja nótt.
Þriðja systirin, Edit Huszti, en konurnar eru þríburar, segist hafa heyrt í þeim síðast á gamlárskvöld og þær hafi virkað glaðar og ekkert verið að.
Darren Bruce, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu, segir að lögregla leggi allt í sölurnar við rannsókn málsins og við leitina að systrunum. Kafarar, sporhundar og þyrlur hafa meðal annars verið notaðar við leitina og þá hefur verið leitað í byggingum á iðnaðarsvæði þar sem systurnar sáust síðast.