Japanska mafían, einnig kölluð Yakuza, notar þessi vinsælu spil til að hvítþvætta peninga og eru háar fjárhæðir sem koma við sögu.
Spilin eru svo verðmæt, að minnsta kosti sum hver, að mafíósar hafa séð sér leik á borði að sögn japanska dagblaðsins Gendai sem hefur eftir fyrrum liðsmanni Yakuza að mafíósar kaupi söfnunarpakka af Pokémonspilum, sem þeir vita að innihalda sjaldgæf spil, og selji þau síðan á alþjóðavettvangi fyrir himinhátt verð.
Þau seljast ekki fyrir neina smáaura og má í því sambandi nefna að bandaríska YouTube-stjarnan Logan Paul greiddi sem svarar til um 800 milljóna íslenskra króna fyrir eitt spil.
Spilin eru seld í pökkum með fimm spilum. Mafíósarnir nota málmleitartæki og aðrar aðferðir til að komast að hvort sjaldgæf spil eru í þeim, ef svo er, þá kaupa þeir pakkana. Þannig eru þeir öruggir um að hagnast á sérhverjum pakka sem þeir kaupa.
Spilin, sem eru vinsæla meðal skólabarna, henta vel til peningaþvættis því þau eru lítil og auðvelt að flytja þau á milli staða. Það er einmitt það sem mafíósarnir gera, þeir fara til útlanda með spilin og selja þau þar og fá greitt fyrir án þess að viðskiptin komi nokkurs staðar fram í opinberum skrám.