„Fætur fólks eru aldrei eins,“ sagði Dr. Corrine Renne, fótaaðgerðafræðingur, í samtali við Live Science.
Rannsókn, sem var gerð 1983, leiddi í ljós að fætur þátttakendanna, sem voru 4.000 konur og 2.800 karlar, voru ekki eins að lögun eða stærð. Rannsókn sem var gerð 2018 af SATRA Bulletin leiddi í ljós að fætur 19% fólks eru líklega ekki jafn langir og var þá miðað við að munurinn væri minnst 4 millimetrar. Einnig kom fram í þessari rannsókn að í Kína eru 24% fólks með fætur þar sem lengdarmunurinn er minnst 4 millimetrar.
Live Science segir að ekki virðist vera samhljómur um hvor fóturinn sé yfirleitt lengri. Til dæmis segi Center for Foot Care í Ohio að hjá um 80% af Bandaríkjamönnum sé vinstri fóturinn stærri en sá hægri. City Chiropody and Podiatry í Lundúnum er þessu sammála og segir að skýringin geti verið að flestir eru rétthentir sem þýði að meira reyni á vinstri fótinn sem verði því aðeins stærri til að halda líkamanum í jafnvægi.
En í rannsókninni frá 2018 kemur fram að hægri fóturinn hafi oftar reynst lengri eða hjá 50,7% breskra kvenna og 54,8% breskra karla.
Jacob Wynes, prófessor og yfirmaður fótafræðideildar Maryland læknaháskólans, sagði að ýmislegt meðfætt geti valdið því að annar fóturinn verði stærri en hinn. Til dæmis ef börn fæðast með klumbufót. Einnig ef ein eða fleiri tær eru styttri eða vanþroskaðar.
Einnig geta meiðsli breytt fótastærðinni, sérstaklega ef þau eiga sér stað á barnsaldri þegar beinin eru enn að þroskast.