Hvað sástu fyrst vinstra megin á myndinni á toppnum: vasa eða tvö andlit?
Hvað með þessa til hægri: sástu fyrst önd eða kanínu?
Samkvæmt því sem segir á samfélagsmiðlum, þá segir svarið til um hvort þú veitir smáatriðum athygli, hvort þú sért í tilfinningalegum ójafnvægi eða hvort þú kjósir að stytta þér leið.
En á þetta sér einhverja stoð í raunveruleikanum? Breskir vísindamenn hjá University of Hertfordshire ákváðu að rannsaka þetta að sögn Videnskab.dk. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu PeerJ.
Richard Wiseman, prófessor og aðalhöfundur rannsóknarinnar, sagði í tilkynningu að fullyrðingar af þessu tagi fari mikinn á samfélagsmiðlum en sálfræðingar hunsi þær yfirleitt og því hafi verið ákveðið að rannsaka þetta.
300 manns á aldrinum 18 til 79 ára tóku þátt í rannsókninni. Fólkið átti að segja hvað það sá á fjórum sjónblekkingamyndum sem er hægt að túlka á mismunandi vegu.
Fólkið tók síðan persónuleikapróf og svaraði spurningalista til að hægt væri að sjá hvernig það hugsaði.
Almennt séð studdu niðurstöðurnar ekki mikið við fullyrðingarnar á samfélagsmiðlum. Til dæmis fundust engin tengsl á milli þess að sjá vasa/andlit á einni myndinni og þess að vera ör eða gefa smáatriðum gaum.
En þegar kom að myndinni af önd/kanínu komu ákveðin tengsl í ljós. Þeir sem sáu fyrst önd, höfðu tilhneigingu til að vera svartsýnir og í meira tilfinningalegu ójafnvægi. Þeir sem sáu kanínu fyrst, voru frekar opnir út á við og vandvirkir.
Wiseman segir að fullyrðingarnar um sjónblekkingar séu „nútímaútgáfa af að fara til miðils“ en hvetur fólk samt sem áður til að taka þessu með opnum huga.