fbpx
Sunnudagur 13.apríl 2025
Pressan

Dóttirin kom upp um hrottalega fortíð föður síns

Pressan
Föstudaginn 11. apríl 2025 22:30

Christopher Hampton. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í 31 ár höfðu eiginkona og dóttir Christopher Hampton ekki hugmynd um að þær bjuggu með manni sem hafði nauðgað unglingsstúlku á hrottalegan hátt og síðan myrt hana. Það var síðan dóttirin sem kom upp um föður sinn en þó óvart.

Það var í byrjun júní 1984 sem mjólkurpóstur og 10 ára sonur hans fundu illa farið lík hinnar 17 ára Melanie Road í Bath á Englandi. Melanie hafði verið úti að skemmta sér með vinum sínum um nóttina og hafði síðan ætlað að ganga heim en það var stutt leið.

En hún komst aldrei heim. Hampton réðst á hana og nauðgaði hrottalega og stakk 26 sinnum.

Lögreglan gerði mikla leit að morðingjanum og vonaðist til að hann myndi nást fljótlega en það liðu 31 ár þar til hann náðist.

Blóðslóð lá frá morðvettvanginum og sýndi blóðrannsókn að morðinginn væri í sama blóðflokki og 3% þjóðarinnar. 71 blóð- og sæðissýni voru tekin á vettvangi og af fatnaði og líkama Melanie.

94 karlar voru handteknir og síðan voru þeir einn af öðrum útilokaðir af listanum yfir hina grunuðu. Að lokum hafði lögreglan enga slóð til að fylgja og mánuðir urðu að árum. Morðingi Melanie virtist ætla að komast upp með níðingsverkið.

DNA-greining var ekki komin til sögunnar á þessum tíma en lögreglan geymdi lífsýnin og þegar DNA-gagnagrunnur, á landsvísu, var settur á laggirnar 1995, 11 árum eftir morðið, voru upplýsingar um morðingjann settar inn í hann.

2009 var fjallað um málið í vinsælum sjónvarpsþætti og almenningur beðinn um upplýsingar. 72 vísbendingar bárust en engin þeirra kom að gagni.

En svo urðu stórar vendingar 2014 þegar atburður, sem virtist algjörlega ótengdur morðinu, átti sér stað. 41 árs kona var þá handtekin í Bath í kjölfar heimilisófriðar. Samkvæmt vinnureglum lögreglunnar var tekið DNA-sýni úr konunni og það síðan skráð í gagnagrunninn.

Árið eftir var DNA-greiningin á sýninu úr morðingja Melanie keyrð í gegnum gagnagrunninn á nýjan leik og þá kom óvænt svörun. Morðinginn var skyldur konunni sem var handtekin í heimilsófriðarmálinu.

Lögreglan hafði því samband við hana. Hún sagði lögreglunni að faðir hennar, Christopher Hampton, væri málari sem hefði búið í Bath þegar Melanie var myrt.

Lögreglumenn heimsóttu hann og tóku lífsýni úr honum. Hampton, sem var orðinn 64 ára, lifði kyrrlátu lífi og var ekki á sakaskrá. Lögreglunni þótti því ólíklegt að hann tengdist málinu. Fimm vikum síðar lá niðurstaða rannsóknarinnar fyrir og sýndu að hann var morðinginn.

Hann var því handtekinn og var dæmdur í ævilangt fangelsi ári síðar. Hann getur sótt um reynslulausn árið 2038 ef honum endist aldur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Handtekin og látin dúsa í fangaklefa eftir að hafa tekið iPad af dætrum sínum

Handtekin og látin dúsa í fangaklefa eftir að hafa tekið iPad af dætrum sínum
Pressan
Í gær

Kenningu varpað fram um slysið sem varð fimm manna fjölskyldu að bana

Kenningu varpað fram um slysið sem varð fimm manna fjölskyldu að bana
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ógnaði unglingum með byssu og hótaði að „skjóta hausinn af þeim“ – Var ósátt við það sem þeir gerðu í garðinum hennar

Ógnaði unglingum með byssu og hótaði að „skjóta hausinn af þeim“ – Var ósátt við það sem þeir gerðu í garðinum hennar
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trans kona send í fangelsi fyrir karlmenn

Trans kona send í fangelsi fyrir karlmenn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eiginkona þekkts rokkara skotin af lögreglu eftir æsilega atburðarás

Eiginkona þekkts rokkara skotin af lögreglu eftir æsilega atburðarás
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Týndu“ líkum tvíbura

„Týndu“ líkum tvíbura
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trúðslæti Trump – Skiptir um skoðun og tilkynnir 90 daga pásu á refsitollunum

Trúðslæti Trump – Skiptir um skoðun og tilkynnir 90 daga pásu á refsitollunum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið

Kínverjar gera grín að Bandaríkjamönnum – Sjáðu myndbandið