Pawlos er sex ára drengur sem býr í bænum Weilburg í Hessen í Þýskalandi. Ekkert hefur spurst til Pawlos síðan um hádegi þriðjudaginn 25. mars en þá fór hann út af skólalóðinni í grunnskóla bæjarsins. Síðast sást til hans á lestarstöðinni í bænum.
Bild greinir frá.
Skömmu síðar kom fram í dagsljósið myndband sem sýnir dreng sem er nauðalíkur Pawlos og lögregla telur vera hann, standa úti á miðri umferðargötu í bænum, í mikilli bílaumferð, en einhver fullorðinn gengur út á götuna og kemur honum til hjálpar.
Leitin að drengnum hefur breiðst út um allt Þýskaland í formi 13.000 stafrænna auglýsingaskilta sem sett hafa verið upp á lestarstöðvum, við hraðbrautir og á flugvöllum, víðsvegar um landið.
Leitarsveitir með sporhunda hafa leitað mikið að drengnum í Weilburg og nágrenni. Leitin hefur engu skilað fram til þessa.
Lögregla hefur beðið þá sem mögulega verða drengsins varir að tala ekki beint við hann og alls ekki hrópa að honum. Hann er sagður vera mjög hræðslugjarn.
Lögreglu telur ekki að saknæmt athæfi hafi leitt til hvarfs drengsins.