Miðillinn New Republic er æsifréttamiðill sem er staðsettur frekar langt til vinstri hvað pólitíska slagsíðu varðar. Að því sögðu leyfir miðillinn sér oft að taka hart til orða í bæði texta frétta sem og fyrirsögnum. Miðillinn skýtur nú föstum skotum á auðkýfinginn Elon Musk í frétt sem ber fyrirsögnina: „Elon Musk forseti sakar alla aðra um að leggja sig í einelti“ og í undirfyrirsögn er tekið fram: „Samhliða tilrauninni til að kaupa kosningar segist Elon Musk ekki skilja hvers vegna fólk hatar hann út af lífinu.“
Fyrirsögnin vísar til uppnefnis sem Musk hefur fengið á netinu. Hann er kallaður forseti því fólki finnst hann hafa svo mikil völd innan ríkisstjórnar Bandaríkjanna og það þrátt fyrir að hafa aldrei verið í framboði, en þar að auki er Musk ekki kjörgengur þar sem hann er ekki fæddur í Bandaríkjunum. Efni fréttarinnar vísar annars vegar til þess að Musk reynir nú að fá hægri sinnaðan hæstaréttardómara kosinn í Wisconsins. Til þess hefur hann gengið svo langt að lofa kjósendum peningagreiðslum. Það er ákveðin fjárhæð ef þeir skrá sig á stuðningsmannalista fyrir hægri sinnaða frambjóðandann og svo getur fólk fengið meira greitt ef það sannfærir aðra um að skrá sig.
Musk mætti svo á kosningafund á sunnudaginn þar sem hann fór mikinn og barmaði sér yfir harðri gagnrýni í sinn garð. „Öfgavinstrið er að halda því fram að við séum að ræna fólk félagslegum stuðningi – sko, í fyrsta lagi, sko, þá þarf ég ekki þennan pening, okey?“
Hagræðingardeild Musk, DOGE, hefur verið falið að taka til í rekstri hins opinbera, en aðgerðir deildarinnar hingað til hafa ekki verið vinsælar þar sem þær hafa einkum beinst gegn þeim hópum sem minnst mega við því. Musk sagði í ræðu sinni að hann væri ekki að reyna að ræna skattfé Bandaríkjamanna en hann væri þó farinn að óttast um sína eigin peninga.
„Það er þvert á móti að kosta mig töluvert að taka að mér þessa vinnu. Nú sjáið þið Tim Walz, dansandi á sviði að sýna gengi hlutabréfa Teslu, sem er virkilega andstyggilegt af honum.“
Þarna talaði Musk um ríkisstjóra Minnesota, Tim Walz, sem einnig var varaforsetaefni demókrata í síðustu forsetakosningum. Walz er farinn af stað með fundaröð til að freista þess að afla demókrötum stuðnings. Walz hefur þar hlakkað yfir óförum bifreiðaframleiðandans Tesla, en hlutabréf hafa verið á hraðri niðurleið undanfarnar vikur og eins hefur framleiðandinn orðið fyrir barðinu á ítrekuðum skemmdarverkum og mótmælum víða um heim. Walz sagði á samfélagsmiðlum að þegar hann er hnugginn yfir fréttum þessa dagana dugi honum það eitt að kíkja á gengi Teslu og þá hressist hann allur við.
Musk segir þetta ósanngjarna framgöngu. Greinilega séu aðilar vinstra megin í stjórnmálunum að beita þrýstingi til að freista þess að stöðva niðurskurð DOGE.
„Það er ekki bara það að ég fæ ekki borgað fyrir þessa vinnu, og ég er klárlega ekki að stela peningum enda kæmist ég aldrei upp með það, heldur hefur virði hlutar míns í Tesla helmingast. Svo ég er að segja ykkur að þessi vinna hefur reynst mér dýrkeypt.“
Musk hafði áður farið mikinn um þórðargleði Walz á samfélagsmiðlum og meðal annars sakað hann um illsku. „Þetta er illgjarnt af honum. Þvílíkur óþokki. Þvílíkur fantur. Hver gleðst yfir svona?“
Walz var fljótur að svara auðkýfingnum: „Elon, ég skal semja við þig. Ég skal hætta að gera grín að hlutabréfunum þínum þegar þú hættir að fikta í félagslega bótakerfinu.“