fbpx
Mánudagur 31.mars 2025
Pressan

Hótaði að birta kynlífsmyndband ef konan stundaði ekki aftur kynlíf með honum

Pressan
Fimmtudaginn 27. mars 2025 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ef þú vilt ekki hitta mig og stunda kynlíf með mér aftur, þá birti ég upptökur af þegar við sváfum saman fyrir nokkrum dögum.“

Eitthvað á þessa leið hljóðuðu skilaboðin í smáskilaboðum sem 57 ára karlmaður sendi konu einni síðasta sumar.

B.T. segir að samkvæmt því sem kemur fram í ákæru á hendur manninum þá hafi hann og konan stundað kynlíf þremur dögum áður en hann sendi skilaboðin. Á meðan þau stunduðu kynlíf, tók maðurinn það upp án vitundar konunnar. Hann er því einnig ákærður fyrir blygðunarsemisbrot auk þess að hafa notað upptökurnar til að reyna að kúga konuna til að stunda kynlíf með honum aftur.

Málið verður tekið fyrir hjá undirrétti í Viborg í Danmörku á næstunni.  Saksóknari krefst þess að hann verði dæmdur til fangelsisvistar og að farsími hans verði gerður upptækur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Gera 500 götur í París að göngugötum

Gera 500 götur í París að göngugötum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði

Þetta þénuðu geimfararnir sem sátu fastir í geimnum í 9 mánuði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Voru að þrífa kjallara fjölbýlishúss þegar þau gerðu óhugnanlega uppgötvun

Voru að þrífa kjallara fjölbýlishúss þegar þau gerðu óhugnanlega uppgötvun
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lík Hackman og eiginkonu hans bíða enn eftir að vera sótt

Lík Hackman og eiginkonu hans bíða enn eftir að vera sótt