Á næstu árum á að koma ofurhljóðfráum kjarnorkuflugskeytum fyrir þar og háþróuðum Rafale-orustuþotum. Með þessu ætlar Macron að auka kjarnorkuvopnafælingu Frakka mjög. Hann segir þetta vera hluta af meiri varnarmætti Evrópuríkja.
1,5 milljarði evra, það svarar til um 220 milljarða króna, verður varið í að nútímavæða Luxeuil-Saint-Sauveru flugvöllinn, sem oft er kallaður BA 116, þannig að þar verði hægt að geyma kjarnorkuvopn og um 40 Rafale F5-orustuþotur. Þær verða vopnaðar ASN4G ofurhljóðfráum kjarnorkuflugskeytum.
Politico segir að í ræðu sem Macron flutti nýlega á flugvellinum hafi hann sagt að heimurinn verði sífellt hættulegri og sífellt meiri óvissa ríki. Því verði Frakkar og Evrópa að halda áfram að byggja upp heri sína og undirbúa sig ef forðast á stríð. Þarna vísaði hann til sívaxandi ógnar sem stafar frá Rússlandi.