fbpx
Mánudagur 10.mars 2025
Pressan

Unglingsstúlka varð ólétt eftir munnmök

Pressan
Sunnudaginn 9. mars 2025 20:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fimmtán ára stúlka, sem bjó í Lesótó í sunnanverðri Afríku, var lögð inn á sjúkrahús með mikla kviðverki sem, undarlegt nokk, líktust hríðum. Hún trúði ekki eigin eyrum þegar læknar sögðu henni að rannsóknir hefðu leitt í ljós að hún væri barnshafandi.

Þetta kemur fram í grein lækna sem hefur verið birt í vísindaritinu British Journal of Obstetrics & Gynaecology.

Í greininni kemur fram að stúlkan hafi ekki verið með leggangaop en það mjög sjaldgæft að stúlkur fæðist án leggangaops.

Fræðilega séð ætti þetta að gera að verkum að stúlkan hefði ekki getað orðið barnshafandi nema með aðstoð tæknifrjóvgunar. Þetta gerir einnig að verkum að barnið gat ekki komið í heiminn í gegnum leggöngin og því varð að taka það með keisaraskurði. Aðgerðin gekk vel og hraustur drengur leit dagsins ljós.

Mirror segir að læknar hafi að vonum verið mjög undrandi yfir þessu öllu og átt erfitt með að skilja hvernig stúlkan varð barnshafandi.

Hún sagðist hafa tekið eftir breytingum á líkama sínum mánuðina áður en drengurinn kom í heiminn en þar sem hún hafi ekki verið með leggangaop og hafi ekki stundað kynlíf þar sem getnaðarlim var stungið inn í leggöngin, hafi nú talið útilokað að hún væri barnshafandi.

Læknarnir komust að því að níu mánuðum áður hafði hún komið á sjúkrahús eftir að hafa verið stungin í kviðinn. Það gerðist skömmu eftir að hún veitti manni munngælur. Hún trúði hjúkrunarfræðingi fyrir að fyrrum unnusti hennar hefði ráðist á hana með ofbeldi því hann hafi talið að hún hefði veitt öðrum manni munngælur.

Læknar komust að þeirri niðurstöðu að sæðið, sem hún kyngdi, hefði á einhvern hátt komist til kynfæranna í gegnum stungusárið og því hafi hún orðið barnshafandi. Þeir sögðu einnig að það styrkti þessa kenningu þeirra að drengurinn væri mjög líkur föður sínum.

Það gerir þetta mál enn undarlegra að magasýra er venjulega nægilega sterk til að geta drepið sæði fljótt og þar með gert það ófært um að frjóvga egg.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Með þessu ráði er leikur einn að þrífa bakstursofninn – Aðeins þrjú efni

Með þessu ráði er leikur einn að þrífa bakstursofninn – Aðeins þrjú efni
Pressan
Í gær

Heimskulegt uppátæki í skíðalyftu dregur dilk á eftir sér – Sjáðu myndbandið

Heimskulegt uppátæki í skíðalyftu dregur dilk á eftir sér – Sjáðu myndbandið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrsta manntalið í tæp 40 ár – Landsmönnum hafði fjölgað mikið miðað við síðustu áætlun

Fyrsta manntalið í tæp 40 ár – Landsmönnum hafði fjölgað mikið miðað við síðustu áætlun
Pressan
Fyrir 2 dögum

Verður líklega dæmd í lífstíðarfangelsi eftir harmleik í barnaafmæli

Verður líklega dæmd í lífstíðarfangelsi eftir harmleik í barnaafmæli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Vendingar í máli drengs sem hvarf árið 2017

Vendingar í máli drengs sem hvarf árið 2017
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ökumaður dæmdur í 48 ára fangelsi eftir skelfilegt slys

Ökumaður dæmdur í 48 ára fangelsi eftir skelfilegt slys
Pressan
Fyrir 4 dögum

Leigusalinn gerði skelfilega uppgötvun í garðinum

Leigusalinn gerði skelfilega uppgötvun í garðinum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sérfræðingar segja þessar fjórar veirur geta valdið næsta heimsfaraldri

Sérfræðingar segja þessar fjórar veirur geta valdið næsta heimsfaraldri