fbpx
Föstudagur 28.febrúar 2025
Pressan

Ofbauð auglýsingaflóðið í bíóinu og fór í mál

Pressan
Fimmtudaginn 27. febrúar 2025 21:30

Myndin tengist fréttinni ekki beint. Mynd: Unsplash.com

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Flest könnumst við eflaust við að fara í bíó, vera mætt á auglýstum sýningartíma en þurfa að bíða í töluverðan tíma eftir kvikmyndinni sem  við komum til að sjá á meðan auglýsingar fyrir ýmsar vörur og kynningarstiklur fyrir aðrar kvikmyndir, sem væntanlegar eru í kvikmyndahúsið, eru sýndar. Fæstum hefur þó dottið í hug að gera annað í því en að í mesta lagi kvarta við kvikmyndahúsið. Ljóst er að þetta er eitthvað sem fólk út um allan heim kannast við. Einn maður á Indlandi ákvað hins vegar að kvörtun dygði ekki til og leitaði ásjár dómstóla en það átti eftir að reynast honum vel.

NBC greinir frá málinu.

Maður að nafni Abhishekh M.R. fór í kvikmyndahús í desember 2023 og keypti þrjá miða á kvikmyndina Sam Bahadur sem er indversk og fjallar um herforingjann Sam Manekshaw. Maðurinn höfðaði málið fyrir sérstökum dómstól í neytendamálum. Kvikmyndahúsið tilheyrir PVR sem er stærsta kvikmyndahúsakeðja Indlands.

Auglýstur sýningartími myndarinnar var 16:05 en hófst ekki fyrr en um 30 mínútum síðar vegna ýmis konar auglýsinga.

Abhishekh sagðist hafa orðið fyrir tjóni vegna tafanna þar sem hann hefði mælt sér mót annars staðar eftir að sýningunni átti að ljúka en vegna þessa seinagangs hafi hann misst af því.

Andleg þján

Abhishekh krafðist andvirði 570 dollara (um 79.000 íslenskar krónur í miskabætur og 60 dollara (8.313 íslenskar krónur) vegna andlegra þjáninga.

Fyrr í þessum mánuði var honum úrskurðað í vil og sagði dómurinn kvikmyndahúsakeðjuna hafa brotið gegn honum á ósanngjarnan hátt. Kvikmyndahúsakeðjunni var uppálagt að greiða Abhishekh andvirði 320 dollara (um 44.300 krónur  í miskabætur) og þar að auki þarf keðjan að greiða andvirði um 160.000 íslenskra króna í sekt.

Í niðurstöðu dómsins segir að kvikmyndahúsagestir flýti sér iðulega í kvikmyndahús til að komast á myndina á auglýstum sýningartíma og búist ekki við að sjá annað en það sem þeir hafi borgað fyrir. Dómurinn segir einnig að kvikmyndahúsið hafi brotið reglur með því að sýna langar auglýsingar í stað tilkynninga frá stjórnvöldum. Ítrekað var í dómnum að kvikmyndasýningar ættu að hefjast á auglýstum tíma.

Dómurinn segir að enginn eigi rétt á að græða á tíma og peninga annarra. Það sé allt of langur tími fyrir kvikmyndahúsagesti að sitja í hálftíma á meðan auglýsingar flæði yfir sýningartjaldið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Kara sakfelld fyrir að myrða tvo unga syni sína

Kara sakfelld fyrir að myrða tvo unga syni sína
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sökudólgurinn í dularfullum veikindum var lítt geðslegur ferðafélagi

Sökudólgurinn í dularfullum veikindum var lítt geðslegur ferðafélagi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dularfullir QR-kóðar settir á rúmlega 1.000 legsteina – Hver bjó þá til og hver er tilgangurinn?

Dularfullir QR-kóðar settir á rúmlega 1.000 legsteina – Hver bjó þá til og hver er tilgangurinn?
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19

Fundu nýja kórónuveiru sem getur smitað fólk á sama hátt og COVID-19
Pressan
Fyrir 5 dögum

Óhugnaðurinn í Ivins – „Myrkrið varð að ljósi og rétt varð rangt“

Óhugnaðurinn í Ivins – „Myrkrið varð að ljósi og rétt varð rangt“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Lét vin sinn grafa eigin gröf eftir að hafa séð hrottalegt myndband                    

Lét vin sinn grafa eigin gröf eftir að hafa séð hrottalegt myndband