fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Pressan

Handtekinn 45 árum eftir morðið á mæðginunum

Pressan
Miðvikudaginn 19. febrúar 2025 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 24. apríl 1979 fann lögreglan lík Deroshia Matthews, 26 ára, og sonar hennar, Kamal sem var 7 ára, á heimili þeirra í Nebraska. Þau höfðu verið myrt og Deroshia hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi.

Lögreglan komst að þeirri niðurstöðu að mæðginin hefðu verið kyrt, líklega með rafmagnssnúru eða kaðli.

Enginn hefur verið ákærður fyrir málið fram að þessu en nú er Abdulmalik Husain, sem er 68 ára, í haldi lögreglunnar vegna málsins og er reiknað með að ákæra verði gefin út á hendur honum fyrir morðin. Hann hét áður Louis Walker. Grunur lögreglunnar hafði lengi beinst að honum en ekki voru nægar sannanir fyrir hendi til að handtaka hann eða ákæra.

CNN segir að þegar gæsluvarðhaldskrafa lögreglunnar yfir Abdulmalik var tekin fyrir í síðustu viku hafi talsmaður lögreglunnar sagt að um „viðbjóðslegan“ glæp hafi verið að ræða og að málið hafi alla tíð verið til rannsóknar.

Abdulmalik og Deroshia kynntust 1975 og voru kunningjar en áttu ekki í ástarsambandi að sögn lögreglunnar.

Ákveðinn áfangi náðist í rannsókn málsins 2004 þegar Abdulmali var handtekinn í Colorado fyrir innbrot. Lífsýni var tekið úr honum og upplýsingar um DNA hans skráðar í gagnagrunn, sem er fyrir lögregluna í öllum Bandaríkjunum, þar sem upplýsingar um dæmda glæpamenn eru skráðar, handtökur og upplýsingar um glæpavettvanga.

DNA úr honum reyndist passa við DNA sem fannst á morðvettvanginum 1979 og var hann handtekinn, grunaður um að hafa myrt mæðginin.

En vegna tæknilegra mistaka hjá saksóknara í Douglas County var málinu vísað frá og Abdulmali var sleppt úr haldi. Ekki var hægt að handtaka hann aftur vegna málsins nema ný sönnunargögn fyndust.

Á grunni nýrrar tækni við DNA-rannsóknir voru lífsýnin rannsökuð á nýjan leik 2021 og fundust þá nægilega sterkar sannanir sem tengdu Abdulmali við morðin. Hann var síðan loks handtekin í síðustu viku.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu

Bankastarfsfólki sagt að finna sér aðra vinnu ef það sættir sig ekki við nýja reglu
Pressan
Í gær

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út

Kínverjar herða tökin – Ekkert sleppur út
Pressan
Fyrir 2 dögum

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti

Frændi meinta raðmorðingjans átti sér líka myrka fortíð – Arkitekt dauðans og presturinn frá helvíti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Af hverju myrti hún fjögur börn sín? – „Konan mín var ekki skrímsli“

Af hverju myrti hún fjögur börn sín? – „Konan mín var ekki skrímsli“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Reka hvernig áróðursherferð með tengsl við Rússland átti að grafa undan stuðningi við Úkraínu – Nota mótmæli sér í hag

Reka hvernig áróðursherferð með tengsl við Rússland átti að grafa undan stuðningi við Úkraínu – Nota mótmæli sér í hag
Pressan
Fyrir 3 dögum

Kanadísk hjón gengu í gegnum „hreina martröð“ á ströndinni

Kanadísk hjón gengu í gegnum „hreina martröð“ á ströndinni