Samkvæmt upplýsingum frá Sameinuðu þjóðunum þá hafa mörg hundruð þúsund manns verið seld mansali og neydd til að vinna í svikatölvuverum af þessu tagi.
Sky News segir að herforingjastjórnin hafi sagt að um 1.030 útlendingum hafi verið bjargað úr svikatölvuverum í Mjanmar á síðustu þremur vikum. Rúmlega 60 höfðu þá verið send til sinna heima að sögn herforingjastjórnarinnar sem sagði að aðrir fengju að yfirgefa landið um leið og búið væri að staðfesta upplýsingar um hvaðan fólkið er.
Bloomberg segir að samkvæmt upplýsingum frá upplýsingaráðuneyti Mjanmar þá séu flest fórnarlömbin frá ríkjum í Asíu, þar á meðal Indlandi og Kína. Einhverjir Afríkubúar voru meðal þeirra sem voru frelsaðir.
Taílendingar hafa hert aðgerðir sínar gegn skipulögðum glæpagengjum, sem starfrækja svikatölvuver við landamæri Taílands og Mjanmar. Það gerðist eftir að mál kínverska leikarans Wang Xing komst í fréttirnar í janúar.
Hér er hægt að lesa um mál hans.
Kínverskum leikara var rænt – Málið vekur athygli á óhugnanlegum iðnaði í Mjanmar