fbpx
Föstudagur 21.febrúar 2025
Pressan

Óvænt heimsókn frumbyggja í þorp í Amazon – Tilheyrir einum einangraðasta þjóðflokki heims

Pressan
Þriðjudaginn 18. febrúar 2025 08:30

Frá Amazon.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ungur maður úr einum einangraðasta þjóðflokki heims kom í óvænta heimsókn í þorp eitt í Amazon í Brasilíu í síðustu viku. Hann stoppaði við í tæpan sólarhring og hélt þá aftur heim á leið.

Sky News segir að maðurinn hafi birst berfættur, með litla lendaskýlu, í þorpinu Bela Rosa sem er við Purus ána.

Maðurinn er sagður hafa verið við góða heilsu og hafi virst rólegur og yfirvegaður. Hann var með tvo viðarbúta meðferðis.

Þorpsbúar telja að hann hafi komið til þeirra til að biðja um eld.

Skömmu eftir að hann kom í þorpið komu starfsmenn Funai, sem er stofnun sem sér um málefni frumbyggja, og fluttu hann í aðstöðu stofnunarinnar nærri þorpinu. Í tilkynningu frá Funai kemur fram að maðurinn hafi síðan snúið aftur inn í frumskóginn tæpum sólarhring eftir að hann kom í þorpið.

Heilbrigðisstarfsfólk skoðaði manninn til að ganga úr skugga um að hann hefði ekki komist í snertingu við sjúkdóma sem ættbálkur hans hefur ekki ónæmi gegn.

Funai hefur einnig gripið til aðgerða til að koma í veg fyrir að fólk reyni að komast til ættflokksins.

Það er stefna brasilískra yfirvalda að reyna ekki að komast í samband við ættbálka frumbyggja, sem lifa einangraðir frá nútímasamfélögum. Þess í stað eru heimkynni þeirra vernduð og eftirlit haft með þeim svo fólk geti ekki sett sig í samband við þessa einangruðu ættflokka.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós
Pressan
Í gær

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?

Basl Markle heldur áfram – Úthugsuð markaðsbrella eða bara vandræðagangur og vanþekking?
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“

Kennari setti netið á hliðina með eitraðri pillu sem hann sendi öfgahægri-miðli – „Nei vinur, andspyrnan er raunveruleg“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Musk neitar að ríkisstjórn Trump ætli að kaupa Teslu Cybertrucks fyrir 56 milljarða

Musk neitar að ríkisstjórn Trump ætli að kaupa Teslu Cybertrucks fyrir 56 milljarða
Pressan
Fyrir 2 dögum

Taívanar taka hart á fyrirtækjum sem hjálpa landsmönnum að sækja um kínversk skilríki

Taívanar taka hart á fyrirtækjum sem hjálpa landsmönnum að sækja um kínversk skilríki
Pressan
Fyrir 3 dögum

Eignaðist barn í neðanjarðarlest í New York – Farþegar komu til aðstoðar

Eignaðist barn í neðanjarðarlest í New York – Farþegar komu til aðstoðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Hverjar geta afleiðingarnar orðið ef 2024 YR4 lendir í árekstri við jörðina? – Þetta vitum við núna

Hverjar geta afleiðingarnar orðið ef 2024 YR4 lendir í árekstri við jörðina? – Þetta vitum við núna