Í Flórída var James Dennis Ford tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu, en hann var ákærður fyrir hrottaleg morð árið 1997.
Það ár bauð hann samstarfsmanni sínum, Gregory Malnory og eiginkonu hans, Kimberly, með í veiðiferð en með í för var tæplega tveggja ára dóttir hjónanna. Skaut hann Gregory í hnakkann áður en hann nauðgaði og drap Kimberly. Dóttir hjónanna fannst heil á húfi átján tímum síðar þar sem hún sat í blóði móður sinnar.
Í Texas var Richard Lee Tabler einnig tekinn af lífi með banvænni lyfjablöndu. Hann var dæmdur fyrir að skjóta tvo karlmenn til bana árið 2004. Fórnarlömbin voru Mohamed-Amine Rahmouni, eigandi strippklúbbs, og vinur hans, Hatham Frank Zayed.
Tveimur dögum síðar skaut hann tvær unglingsstúlkur til bana sem störfuðu á þessum sama klúbbi. Ekki var réttað yfir honum vegna þeirra morða þar sem hann var dæmdur til dauða fyrir fyrri tvö morðin.
Richard var starfsmaður klúbbsins en var rekinn eftir að það kastaðist í kekki á milli hans og Rahmouni.