Á blaðamannafundi í gærkvöldi var hann meðal annars spurður út í samskiptin við Íran, en eins og kunnugt er hefur grunnt verið á því góða á milli þjóðanna á undanförnum árum.
Forsetinn skrifaði í gær undir tilskipun þess efnis að Íranar verði beittir enn frekari þrýstingi (e. maximum pressure) í þeim tilgangi að fá þá til að breyta um stefnu í ýmsum málum, þar á meðal kjarnorkuáætlun landsins.
Í fyrra var greint frá því að yfirvöld í Íran hefðu haft í hyggju að ráða Trump af dögum og ef marka má ummæli Trumps er hann þegar búinn að ákveða hvað gerist ef af því verður.
Trump segist þegar hafa rætt við ráðgjafa sína um að Íran verði eytt af landakortinu ef þeir koma honum fyrir kattarnef. „Ef þeir gera það þá verður þeim eytt. Ég er búinn að gefa út leiðbeiningar um að ef það gerist verður þeim eytt. Það verður ekkert eftir,“ sagði Trump.
Bandaríska dómsmálaráðuneytið greindi frá því í nóvember að írönsk yfirvöld hefðu fengið 51 árs karlmann, Farhad Shakeri, til að ráða Trump af dögum. Hann er enn eftirlýstur og er talinn halda sig í Íran. Árið 2020 fyrirskipaði Trump morðið á Qassem Soleimani, herforingja hjá hersveitum íranska byltingarvarðarins, og er talið að Íranar vilji hefna fyrir það.
Tilskipunin sem Trump skrifaði undir í gærkvöldi hefur meðal annars það að markmiði að keyra olíuútflutning Írans niður í núll.