Nú hafa ítalskir stjórnmálamenn ákveðið að reyna að gera eitthvað í málinu til að fækka dauðsföllunum. Þeir hafa ákveðið að hækka sektir fyrir að tala í farsíma, án þess að nota handfrjálsan búnað, á meðan ekið er og það ríflega.
FDM skýrir frá þessu og segir að við fyrsta broti af þessu tagi verði ökumenn sektaðir um 250 evrur, ca. 36.000 krónur. Ef viðkomandi er gripinn aftur, hækka sektirnar og geta orðið allt að 1.000 evrur, 146.000 krónur. Ef ökumaður lendir í óhappi, á meðan hann er að tala í síma án handfrjáls búnaðar, þá verða sektirnar enn hærri.
Fyrir útlendinga mun aukakostnaður leggjast ofan á því rukkað verður sérstaklega fyrir að senda sektina til heimalands þeirra. Ef ökumaðurinn ók bílaleigubíl, þá rukka bílaleigurnar hann fyrir ýmsan kostnað sem þær bera vegna sektargreiðslna.
Einnig var ákveðið að herða refsingar vegna ölvunaraksturs og verða sektirnar framvegis á bilinu frá 573 evrum, 84.000 krónur, til 2.170 evra, 318.000 krónur, ef áfengismagnið mælist 0,5 til 0,8 prómill.
Framvegis verða sektir fyrir að leggja í stæði fatlaðra frá 330 evrum, 48.000 krónur, upp í 990 evrur, 145.000 krónur.
Ítalir eru ekki þeir fyrstu til að hækka sektir fyrir umferðarlagabrot. Norðmenn hækkuðu sektir fyrir notkun farsíma, án handfrjáls búnaðar, á síðasta ári og er hún núna sem svarar til um 123.000 íslenskum krónum.
Sektin fyrir að aka á akrein strætisvagna er sem nemur 100.000 íslenskum krónum. Ef ekið er gegn rauðu ljósi þarf ökumaður að punga út sem nemur 121.000 íslenskum krónum.