BBC skýrir frá þessu og segir að morðið hafi verið sérstaklega „villimannslegt og hrottalegt“.
Dylan Thomas, 24 ára, er erfinginn að skoska tertuveldinu Peter‘s Pies sem afi hans stofnaði með bróður sínum. Þeir voru einmitt viðstaddir dómsuppkvaðninguna í síðustu viku.
Dylan var dæmdur í ævilangt fangelsi. Samkvæmt breskum lögum þá getur hann sótt um reynslulausn eftir 19 ár.
Dylan bjó með besta vini sínum, sem var ári yngri. Á aðfangadagskvöld 2023 stakk hann vin sinn 37 sinnum með stórum eldhúshnífi og grænmetishnífi. Hann játaði að hafa orðið honum að bana en sagði að það hafi ekki verið ásetningur hans.
Dómarinn sagði morðið hafa verið „tilgangslaust“ og lagði áherslu á að refsingin ætti ekki að vera mælikvarði á hvers virði líf hins myrta var, því mannslíf séu „ómetanleg“.