Brueckner losnar fljótlega úr fangelsi í Þýskalandi en hann afplánar nú sjö ára dóm fyrir að hafa nauðgað bandarískri konu í Algarve í Portúgal. Það gerðist tveimur áður áður en Madeleine hvarf á sama stað.
Hann lýkur afplánun dómsins í september en gæti fengið dagsleyfi úr fangelsi á næstu vikum að öllu óbreyttu.
Philipp Marquort, einn lögmanna hans, segir að þeir hafi rætt um að hann muni flytja úr landi þegar hann losnar, til lands sem er ekki með framsalssamning við Þýskaland eða Bretland.
Í samtali við Mirror sagði hann að þeir hafi einnig rætt möguleikann á að hann láti breyta andliti sínu svo fólk geti ekki borið kennsl á hann. Sagðist Marquort hafa ráðlagt honum að gera það.