Á níunda áratugnum flaut blóðið eftir götum Sikileyjar. Mafíustríðið stóð sem hæst og margir létust.
Ef maður vill komast að því hvernig það var að vera harðsnúnasti glæpamaðurinn á eyjunni, þá er hægt að komast að því með því að spila borðspilið „La Famiglia: The Great Mafia War“.
Spilið var kjörið besta borðspilið árið 2023 en það fellur ekki vel í kramið hjá Ítölum.
Maria Falcone, systir dómarans Giovanni Falcone, sem mafían myrti, segir spilið vera högg í andlit allra þeirra sem hafa barist gegn skipulagðri glæpastarfsemi á Ítalíu. The Guardian skýrir frá þessu.
Á aðeins tveimur árum voru rúmlega 1.000 drepnir í mafíustríðinu á Sikiley. Mörg fórnarlambanna voru saklausir borgarar.
Maria Falcone segist ekki skilja hvernig nokkrum hafi dottið í hug að gera spil af þessu tagi þar sem er verið að leika sér með tilfinningar þeirra sem létust við skyldustörf. Hún segir spilið hreina vanvirðingu.
„Mafían hefur ekki haft neitt annað í för með sér en dauða á Sikiley og á Ítalíu. Spil eins og þetta vanvirðir minningu þeirra sem lögðu sitt af mörkum til að frelsa þetta land,“ sagði hún.
Ítalskir stjórnmálamenn eru einnig ósáttir við spilið og hafa þeir kvartað opinberlega undan því.