fbpx
Laugardagur 22.febrúar 2025
Pressan

Hryllilegar heimilisaðstæður enduðu með fjölskylduharmleik – „Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu“

Pressan
Föstudaginn 24. janúar 2025 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrítug einstæð móðir, Deveca Rose, hefur verið dæmd í tíu ára fangelsi fyrir að hafa skilið fjóra unga syni sína eftir eina heima við ömurlegar aðstæður. Rose brá sér í búðina og á meðan brann heimilið til grunna og létust bræðurnir fjórir allir í brunanum.

Í desember 2021 skildi Rose tvíburana Kyson og Bryson, fjögurra ára, og tvíburana Leyton og Logan, þriggja ára eftir umkringda rusli og mannasaur á heimili þeirra í Sutton í suður London. Rose læsti heimilinu og fór síðan að kaupa „ónauðsynlegar“ vörur í matvörubúð Sainsbury’s .

Bræðurnir fjórir

Dómurinn yfir Rose var kveðinn upp í Old Bailey í dag og sagði Kerrie Hoath stjúpamma bræðranna að réttlætinu hefði verið fullnægt, en hún syrgði þá jafnframt eftir að þeir voru teknir á svo grimmilegan hátt frá fjölskyldu þeirra.

„Virðingarleysið sem hún sýndi strákunum okkar hefur endurómað öll réttarhöldin þar sem fjölskyldan okkar hefur þurft að þola þriggja ára lygar, tafir og rangar frásagnir. Þessi tími hefur verið martröð og það er ekki hægt að lýsa þeim áhrifum sem hann hefur haft á fjölskyldu okkar. Við höfum heyrt vangaveltur um að eldurinn hafi kviknað af ljósum á jólatré, rangar fullyrðingar um að drengirnir hafi verið skildir eftir með barnapíu. Við þökkum dómaranum fyrir að hafa horft framhjá þessu og kveðið upp réttlátan dóm. Bryson, Kyson, Logan og Leyton voru skildir eftir einir af móður sinni Deveca Rose. Hún hefur verið dæmd  til ábyrgðar vegna andláts þeirra. Við söknum þeirra á hverjum degi og munum alltaf geyma þá í hjörtum okkar.“ 

Í réttarhöldunum kom fram að talið er að eldurinn hafi kviknað vegna hálfreyktrar sígarettu eða teljós. Nágrannar heyrðu drengina gráta í örvæntingu og öskra á hjálp.

„Það er eldur,“ heyrðust bræðurnir öskra.

Einn nágranni reyndi að brjóta niður útidyrnar en það var of seint. Slökkviliðsmenn fundu bræðurna þar sem þeir lágu meðvitundarlausir undir rúmum sínum. Þeir voru fluttir með hraði á tvö sjúkrahús. Allt var reynt til að bjarga lífi þeirra, en þeir létust síðar um nóttina. 

Dánarorsök þeirra var skráð sem reykinnöndun. 

Slökkviliðsmenn leituðu að barnapíu sem var ekki til

Rose sneri aftur heim á meðan slökkviliðsmenn voru enn að ráða niðurlögum eldsins og nágranni tók á móti henni.  Rose hélt því fram að hún hefði skilið börnin eftir hjá vinkonu að nafni Jade, sem varð til þess að slökkviliðsmenn fóru aftur inn í húsið til að leita að henni.

Lögreglan gerði víðtækar rannsóknir til að finna umrædda Jade og komst að þeirri niðurstöðu að hún væri annað hvort ekki til eða hefði ekki verið í húsinu þennan dag.

Í yfirheyrslum hjá lögreglu viðurkenndi Rose að hafa skilið drengina eftir eina í húsinu í tvö skipti. Félagsráðgjafi hafði lýst yfir áhyggjum af fjölskyldunni en málinu var lokað þremur mánuðum fyrir brunann. Áður hafði heilbrigðisstarfsmaður einnig lýst yfir áhyggjum sínum en þeim var ekki fylgt eftir eftir að hún lét af störfum.

Deveca Rose

Heimilið fullt af rusli og mannaskít

Fjölskyldan bjó við ömurlegar aðstæður. Heimilið var svo fullt af rusli að eldurinn breiddist hraðar út og mannasaur fannst smurður á veggina. Bræðurnir höfðu ekki mætt í skóla í þrjár vikur fyrir eldsvoðann. Við réttarhöldin kom fram að klósettið og baðið væru ónothæf vegna þess að þau væru svo full af rusli, en fötur og pottar voru notaðir í staðinn.

Grét meðan ættingjar minntust bræðranna

Fjöldi ættingja drengjanna las upp yfirlýsingar í dóminum í dag. Dalton Hoath, faðir drengjanna, sagði að hann gæti ekki lýst því hvaða áhrif dauði barnanna hefði haft á hann og sagðist hann helst vilja fylgja þeim í dauðann. „Sársaukinn af þessum missi hefur splundrað líf mitt á allan mögulegan hátt,“ sagði faðir hans, Jason Hoath

„Tilhugsunin um að þeir hafi grátið og öskrað mun ásækja mig að eilífu. Eina huggun mín er að þeir eru nú saman að eilífu og þurfa aldrei að vera einir aftur. Hryllingurinn, sársaukinn situr eftir hjá mér eftir þrjú ár,“ sagði langamman Sally Johnson.

Rose huldi andlit sitt og grét þegar yfirlýsingar ættingja sona hennar voru lesnar upp áður en dómur var kveðinn upp, 10 ára fangelsi vegna fjögurra ákæra um manndráp. 

„Ef þú hefðir verið heima hefðir þú mögulega getað slökkt eldinn eða getað komið þeim út úr húsinu. Þú varst ekki þarna og börnin voru of ung til að vita hvað þau ættu að gera. Vegna gjörða þinna eru þeir látnir“

Dómarinn, Mark Lucraft KC, tilkynnti að Rose hyldi andlit sitt og að það væri læknisfræðileg ástæða fyrir því. Rose mætti oftast við réttarhöldin með fjarfundi að heiman, mun það hafa verið samkvæmt læknisráði. Hún neitaði einnig að leggja fram einhver sönnunargögn sér til varna. Fyrir dómi voru lagðar fram vísbendingar um að hún væri líklega þunglynd og gæti hafa þjáðst af persónuleikaröskun, en ákæruvaldið fullyrti að það væri ekki vörn. Lögfræðingur hennar hélt því fram að Rose hefði glímt við „flóknar geðheilbrigðisþarfir“. „Jafnvel þótt hún beri refsiábyrgð á dauða þessara barna, þá hefur hún orðið fyrir mestu tjóni allra,“ sagði lögmaður Rose.

„Það eru engin orð til að lýsa þessu máli önnur en hörmulegt. Síðustu augnablik lífs ungra bræðra voru mörkuð líkamlegri þjáningu þar sem eldurinn blossaði upp og þeir reyndu að komast burt frá honum,“ sagði dómarinn við uppkvaðningu dóms síns. 

Hann sagði við Rose:

„Ef þú hefðir verið heima hefðir þú mögulega getað slökkt eldinn eða getað komið þeim út úr húsinu. Þú varst ekki þarna og börnin voru of ung til að vita hvað þau ættu að gera. Vegna gjörða þinna eru þeir látnir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Musk og DOGE höfð að háði og spotti fyrir lélegt gagnalæsi

Musk og DOGE höfð að háði og spotti fyrir lélegt gagnalæsi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Nágrannadeilur stigmögnuðust í Ástralíufríi – Sáu nágrannana nýta tækifærið og „stela“ garðinum

Nágrannadeilur stigmögnuðust í Ástralíufríi – Sáu nágrannana nýta tækifærið og „stela“ garðinum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós

Neyðast hugsanlega til að hætta að selja Coca-Cola í dós
Pressan
Fyrir 2 dögum

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim

Ríkustu menn Ítalíu héldu að varnarmálaráðherrann þarfnaðist aðstoðar þeirra – Síðar rann ótrúlegur sannleikurinn upp fyrir þeim
Pressan
Fyrir 3 dögum

Deitaði á laun í bataferlinu

Deitaði á laun í bataferlinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Donald Trump sagður hafa eytt 1,5 milljarði af skattpeningum í að spila golf síðan hann tók við embætti

Donald Trump sagður hafa eytt 1,5 milljarði af skattpeningum í að spila golf síðan hann tók við embætti
Pressan
Fyrir 3 dögum

Musk neitar að ríkisstjórn Trump ætli að kaupa Teslu Cybertrucks fyrir 56 milljarða

Musk neitar að ríkisstjórn Trump ætli að kaupa Teslu Cybertrucks fyrir 56 milljarða
Pressan
Fyrir 3 dögum

Taívanar taka hart á fyrirtækjum sem hjálpa landsmönnum að sækja um kínversk skilríki

Taívanar taka hart á fyrirtækjum sem hjálpa landsmönnum að sækja um kínversk skilríki