fbpx
Fimmtudagur 09.janúar 2025
Pressan

Bandarískur hermaður handtekinn – Grunaður um einn stærsta gagnaþjófnaðinn á síðasta ári

Pressan
Miðvikudaginn 8. janúar 2025 07:00

Þeir hafa gott upp úr þessu.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Cameron Wagenius, tvítugur bandarískur hermaður, er í haldi yfirvalda, grunaður um að vera maðurinn á bak við einn stærsta gagnaþjófnaðinn á síðasta ári.

Cameron var handtekinn í Fort Hood herstöðinni í Texas rétt fyrir jól. Hann er sakaður um að hafa stolið notandagögnum frá símafyrirtækjunum AT&T og Verizon og að hafa stært sig af því í spjallhópum tölvuþrjóta að vera með með símtalaskrá Donald Trump og Kamala Harris í fórum sínum.

Sérfræðingar hafa rakið stafræn fótspor hans og afhjúpað dulnefni hans á netinu en það er Kiberphant0m. Það var einmitt þetta sem leiddi til handtöku hans í Fort Hood.

Í skýrslu frá tölvuöryggisfyrirtækinu KrebsOnSecurity er fjallað um það sem Cameron tók sér fyrir hendur á netinu. Einnig er vitnað í samtöl við ættingja hans og vísað í leynileg dómskjöl en allt þetta varð til þess að hann var handtekinn. Mozilla skýrir frá þessu.

Stafræn fótspor

Cameron er sakaður um að hafa selt notandagögn úr stórum gagnaleka hjá AT&T, einum þeim stærsta í Bandaríkjunum.

Hann er einnig sakaður um að hafa verið með notandagögn frá Verizon í fórum sínum og að hafa stært sig af að vera með símtalaskrá Donald Trump og Kamala Harris í fórum sínum. Hann er sagður hafa stært sig af þessu í spjallhópum tölvuþrjóta auk þess sem hann sagðist hafa brotist inn í tölvukerfi minnst 15 símafyrirtækja til að stela notandagögnum. En þessar færslur hans gerðu að verkum að KrebsOnSecurity fékk áhuga á honum og vildi komast að hver stæði á bak við dulnefnið Kiberphant0m.

Ein mistök

Allison Nixon, yfirmaður hjá netöryggisfyrirtækinu Unit 221B, var einnig meðal þeirra sem komust að því hver maðurinn á bak við Kiberphant0m er. Hún segir að Cameron hafi gert ein mistök sem urðu honum að falli.

Hægt var að tengja skrif hans frá 10. nóvember við virkni á Telegramrás þann 6. desember. Í kjölfarið var Cameron handtekinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Veirufaraldur í Kína

Veirufaraldur í Kína
Pressan
Fyrir 2 dögum

Tveggja barna faðir þurfti aðeins að skreppa en sást aldrei aftur á lífi

Tveggja barna faðir þurfti aðeins að skreppa en sást aldrei aftur á lífi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Herlögreglan er tilbúin til átaka við glæpagengin á Haítí

Herlögreglan er tilbúin til átaka við glæpagengin á Haítí
Pressan
Fyrir 3 dögum

10 ára gömul ráðgáta er aftur til skoðunar – Engin greiðsla ef ekkert finnst

10 ára gömul ráðgáta er aftur til skoðunar – Engin greiðsla ef ekkert finnst
Pressan
Fyrir 4 dögum

Læknir segir að þessar fæðutegundir bæti einbeitinguna og heilastarfsemina

Læknir segir að þessar fæðutegundir bæti einbeitinguna og heilastarfsemina
Pressan
Fyrir 5 dögum

Ef þú hættir að drekka kaffi þá hefur það þessi jákvæðu áhrif á líkamann

Ef þú hættir að drekka kaffi þá hefur það þessi jákvæðu áhrif á líkamann
Pressan
Fyrir 6 dögum

Syrgjandi háhyrningskýrin sást aftur á sundi með látinn kálf – „Hún er að syrgja“

Syrgjandi háhyrningskýrin sást aftur á sundi með látinn kálf – „Hún er að syrgja“
Pressan
Fyrir 6 dögum

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald

Maðurinn í Teslunni: Konan fór frá honum um jólin vegna gruns um framhjáhald