Hjónin, sem voru búsett í Muscle Shoals í Alabama, áttu íbúð í Okaloosa-sýslu á Flórída en skömmu eftir komuna þangað fór William að kenna sér meins vinstra megin í kviðarholinu.
Verkirnir virtust ágerast með tímanum og fór það svo að hann skellti sér til læknis á sjúkrahúsi í Walton-sýslu. Eftir ýmsar rannsóknir kom í ljós að skýringin á verkjunum var stækkað milta og töldu læknar öruggast að hann myndi gangast undir brottnám á miltanu.
Það var svo þann 21. ágúst að William gekkst undir aðgerð sem læknir að nafni Thomas Shaknovsky framkvæmdi. Í aðgerðinni gerði Thomas sig sekan um ótrúleg mistök þegar hann fjarlægði úr honum lifrina í stað þess að fjarlægja miltað. Þetta olli mikilli blæðingu og dauða innan skamms tíma.
Eftir aðgerðina tjáði Thomas eiginkonu Williams að miltað hafi verið mjög illa farið og fjórum sinnum stærra en venjulega. Þá hafi það verið komið hægra megin í kviðarholið.
Í umfjöllun New York Post er bent á það að lifrin sé ofarlega hægra megin í kviðarholinu en miltað ofarlega vinstra megin í kviðarholinu. Miltað er töluvert minna en lifrin á meðan lifrin er á stærð við hnefa og um 1,1 til 1,4 kíló yfirleitt.
Eins og gefur að skilja er málið komið til lögfræðinga sem undirbúa nú málsókn gegn lækninum sem framkvæmdi aðgerðina og sjúkrahúsinu. Segir lögmaður fyrirtækisins sem fer með málið, Zarzaur Law, að þetta sé ekki í fyrsta skiptið sem Thomas sig sekan um alvarleg mistök. Þannig hafi hann gert aðgerð á sjúklingi í fyrra þar sem hann fjarlægði hluta af briskirtli sjúklings þegar hann átti að fjarlægja aðra nýrnahettuna. Það mál var leyst án aðkomu dómstóla.