Richard, 39 ára, og Christina, 53 ára, voru stærðfræðikennarar við skólann en Mason og Christian nemendur. Þau voru bæði 14 ára.
Hinn grunaði í málinu heitir Colt Gray og er hann í haldi lögreglu eftir árásina. Auk þess að drepa fjóra særði hann níu: Átta nemendur og einn kennara. Ekki er talið að neitt þeirra sé í lífshættu. Lögregla segir að réttað verði yfir Colt líkt og um fullorðinn einstakling sé að ræða sem þýðir að Colt verður að líkindum dæmdur í lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn.
CNN greindi frá því í morgun að lögregla hefði í fyrra yfirheyrt Colt og föður hans vegna nafnlausra ábendinga sem höfðu borist um að hann hefði í hyggju að fremja skotárás. Colt neitaði að hafa nokkuð slíkt í hyggju og sagði faðir hans við sama tilefni að þó hann ætti nokkurn fjölda skotvopna hefði sonur hans engan aðgang að þeim.
CNN ræddi í morgun við Kathrine Maldonado sem stundar nám við Apalachee-skólann. Hún svaf yfir sig í gærmorgun en vaknaði upp við vondan draum þegar hún fékk skilaboð frá vinkonu þess efnis að lögregla væri búin að loka skólanum vegna byssumanns. Ekki löngu síðar fékk hún skilaboð þess efnis að skólabróðir hennar og vinur væri látinn eftir árásina.
„Ég fór að gráta þegar ég frétti þetta og varð mjög reið. Af hverju skýtur maður saklaust fólk,“ spurði hún. Christian var góður vinur hennar og segir hún að hann hafi verið í miklum metum hjá bekkjarfélögunum, alltaf hress og kátur og stundum kallaður „trúðurinn“ í bekknum.
Eðli málsins samkvæmt eru nemendur við skólann í miklu áfalli eftir atvikið í gær. Macey Right, 14 ára, segist ekki vilja fara aftur í skólann. „Maður á ekki að þurfa að fara í skólann og hafa um leið áhyggjur af því að koma ekki lifandi heim. Það eina sem ég vil þurfa að hafa áhyggjur af er að ná góðum einkunnum til að tryggja framtíð mína sem best,“ segir hún.