fbpx
Laugardagur 28.september 2024
Pressan

Brjóst eru ekki bara brjóst – Segja þau virkilega eitthvað um kynhvöt kvenna?

Pressan
Laugardaginn 28. september 2024 21:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kvenmannsbrjóst eru ekki bara brjóst, eða hvað? Svo virðist sem fólk geri sér ákveðnar skoðanir um kynhvöt og kynlífsiðkun kvenna út frá brjóstastærð þeirra. En þetta passar ekki endilega saman við raunveruleikann.

Þetta eru niðurstöður pólskrar rannsóknar sem rúmlega 500 karlar og konur tóku þátt í. Í fyrsta hluta rannsóknarinnar var rætt við 163 ungar konur. Brjóstastærð þeirra var mæld og kynlífshegðun þeirra skráð til að sjá hvort tengsl væru þarna á milli. Niðurstaðan var að engin tengsl voru á milli þess að vera með stór brjóst og tíðni skyndikynna eða mikils magns kynhormónanna testósteróns og estradíóls en bæði hormónin geta haft áhrif á kynhvöt fólks.

Í öðrum hluta rannsóknarinnar voru 500 karlar og konur látin dæma myndir af konum með mismunandi stór brjóst. Niðurstaðan var að bæði kynin töldu að konur með stór brjóst væru með meiri kynhvöt og væru lauslátari en þær brjóstaminni. Einnig taldi fólkið að konurnar væru frjósamari og betri til að framleiða mjólk. Fólkið taldi einnig að brjóstastóru konurnar væru líklegri til að halda framhjá og væru ekki eins greindar og konur með lítil eða meðalstór brjóst. Í heildina var það mat fólksins að barmstórar konur væru betri til að eiga í skammtímasamböndum. Stór brjóst þóttu þó ekki meira aðlaðandi eiginleiki í fari kvenna. Lítil brjóst voru einu brjóstin sem þóttu síður aðlaðandi.

Vísindamennirnir reyndu að koma með skýringar á af hverju fólk telur að konur með stór brjóst séu með meiri kynhvöt og séu lauslátari en aðrar konur. Ein af skýringum þeirra er að fólk fái þessar hugmyndir úr klámmyndum því konur í þeim séu oft með brjóst yfir meðalstærð.

Þeir komust einnig að þeirri niðurstöðu að konur með stór brjóst séu ekki lauslátari en aðrar konur og að karlar sem eru að leita eftir skyndikynnum ættu að muna að þótt að kona sé með stór brjóst þýði það ekki endilega að hún vilji hoppa í bólið með þeim.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Neituðu drengnum um vegabréf vegna nafns hans

Neituðu drengnum um vegabréf vegna nafns hans
Pressan
Í gær

Fjarlægðu 40.000 býflugur af heimilinu

Fjarlægðu 40.000 býflugur af heimilinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Fundu 30 rotnandi lík í báti

Fundu 30 rotnandi lík í báti
Pressan
Fyrir 2 dögum

Lokuð gönguleið laðar ofurhuga að sér – „Einhver mun slasast eða deyja“

Lokuð gönguleið laðar ofurhuga að sér – „Einhver mun slasast eða deyja“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli

Rússneskur hermaður baðst vægðar – Það sem gerðist næst hefur vakið athygli
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tveir fangar teknir af lífi í Bandaríkjunum

Tveir fangar teknir af lífi í Bandaríkjunum
Pressan
Fyrir 3 dögum

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni

20 árum eftir andlát hans opnaði hún hlöðuna hans loksins – Mögnuð sjón blasti við henni
Pressan
Fyrir 3 dögum

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“