Þetta hljómar auðvitað alveg ótrúlega en er engu að síður satt.
Joao kann vel að meta lífið og er þakklátur fyrir að vera á lífi en það getur hann þakkað læknum sem náðu að bjarga lífi hans og tryggja honum góða heilsu.
Allt byrjaði þetta vordag einn þegar hann var í vinnunni sem sendill. Hann fór hratt yfir á rafmagnshlaupahjólinu en skyndilega var bíll stöðvaður skyndilega fyrir framan hann. Hann reyndi að sveigja fram hjá honum en missti stjórn á hlaupahjólinu og datt og höfuð hans skall á malbikinu.
Höfuðhöggið olli bólgum og alvarlegum heilaskaða. Þess utan hlaut hann áverka á hnjám, gat á lunga og viðbeinsbrotnaði.
Læknar ákváðu að fjarlægja hluta af höfuðkúpunni til að létta þrýstingi af heilanum.
„Ég man ekkert eftir slysinu en ég vissi að áverkarnir voru mjög alvarlegir,“ sagði Joao í samtali við G1 Globo.
Sá hluti af höfuðkúpunni, sem læknarnir fjarlægðu, var settur í maga hans til að vernda þennan hluta fyrir sýkingu og til að gera læknum auðveldara fyrir að setja hann á aftur.
Joao gekk því um með hluta af höfuðkúpunni í maganum í þrjá mánuði. Þá gekkst hann aftur undir aðgerð þar sem þessi hluti var græddur aftur á hann.