fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Pressan

Iðnaðarmaður gerði óhugnanlega uppgötvun þegar hann gerði við svalagólf

Pressan
Þriðjudaginn 24. september 2024 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður sem vann við viðgerðir á svalagólfi við íbúð í fjölbýlishúsi í borginni Geoje í Suður-Kóreu gerði óhugnanlega uppgötvun á dögunum. Í steypunni fann hann ferðatösku og í ferðatöskunni var lík af kvenmanni.

Lögregla bar kennsl á konuna með aðstoð fingrafara og kom þá í ljós að tilkynnt hafði verið um hvarf konunnar fyrir sextán árum. Fyrrverandi sambýlismaður hennar var handtekinn og hefur hann nú viðurkennt að hafa orðið henni að bana.

BBC greinir frá þessu.

Maðurinn sem var handtekinn er á sextugsaldri og játaði hann að hafa barið konuna í höfuðið í kjölfar heiftarlegra rifrilda þeirra á milli árið 2008.

Kom hann líki hennar fyrir í ferðatösku sem hann steypti svo í svalagólfið við íbúð sína. Maðurinn var ekki búsettur í umræddri íbúð þegar hann var handtekinn en hann flutti úr íbúðinni árið 2016.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Handtekinn grunaður um tvöfalt morð 1977

Handtekinn grunaður um tvöfalt morð 1977
Pressan
Fyrir 3 dögum

Var úti að leika þegar honum var rænt sex ára gömlum – 70 ára leit fjölskyldunnar á enda

Var úti að leika þegar honum var rænt sex ára gömlum – 70 ára leit fjölskyldunnar á enda