Maria Ozuna Teachey er velþekkt á samfélagsmiðlum. Hún er áhrifavaldur og er með rúmlega 200.000 fylgjendur á Instagram og því vekja myndir, sem hún birtir, mikla athygli og ná til margra.
En þessi mynd hefur fengið meiri viðbrögð og umtal en aðrar myndir hennar.
Myndin er tekin fyrir framan spegil. Maria stendur fyrir framan hann og fyrir aftan hana er karlmaður sem heldur um hana. En andlit mannsins sést ekki og því hafa margir velt fyrir sér hvort maðurinn sé bandaríska körfuboltastjarnan Shaquille O‘Neal.
Svo rammt hefur kveðið að kjaftasögum og vangaveltum þessu tengdu að stjarnan sá sig tilneyddan til að tjá sig um málið á samfélagsmiðlum. „Nei, þetta er ekki ég,“ skrifaði hann að sögn New York Post.
En Maria hefur ekki tjáð sig um hver maðurinn er og því verða fylgjendur hennar að halda áfram að lifa í mikilli óvissu.