„Það eina sem ég sá voru klær og tennur. Ég lyfti hægri handleggnum til að reyna að loka fyrir árás hans. Ég man eftir fyrsta bitinu. Ég heyrði marr, björninn var enn að ráðast á mig. Hann vildi ekki fara frá mér,“ hefur AP eftir Beierman.
En það varð honum líklega til lífs að 12 ára sonur hans, Owen, náði veiðiriffli föður síns og skaut og drap björninn sem lá ofan á Beierman.
Beierman náði síðan að ýta birninum ofan af sér. Hann sagðist telja að árásin hafi staðið yfir í um 45 sekúndur.
Gert var að sárum hans á sjúkrahúsi en hann var með fjölda bitsára og skurð á hægri handleggnum. Auk þess hafði björninn gert gat í aðra kinn hans og sauma þurfti 23 spor í bringuna.