fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Pressan

Mætti heim til hjónanna og nauðgaði eiginkonunni daginn sem dóttir hans fæddist

Pressan
Mánudaginn 23. september 2024 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Joan Kwai, 26 ára gamall karlmaður, er sá yngsti í hópi þeirra 50 einstaklinga sem ákærðir hafa verið fyrir að taka þátt í nauðgunum í einu svívirðilegasta máli sem skekið hefur franskt réttarkerfi.

Brotin beindust gegn Gisele Pelicot og hefur eiginmaður hennar, Dominique, þegar játað að hafa byrlað henni ólyfjan ítrekað og fengið ókunnuga karlmenn til að nauðga henni. Mönnunum kynntist hann á netinu og stóðu brotin yfir um margra ára skeið, eða frá 2011 til 2020.

Daily Mail hefur fylgst vel með réttarhöldunum og segir miðillinn frá því að Joan hafi verið yfirheyrður af ákæruvaldinu í dómsal í morgun.

Kwai fæddist í Gvæjana á norðurströnd Suður-Ameríku en fluttist til Frakklands á unglingsárunum. Hann kom fyrst heim til Gisele og Dominique í nóvember 2019, eða sama dag og dóttir hans kom í heiminn. Þar tók hann þátt í brotum gegn Gisele. Hann gerði það sama einu sinni enn og hugðist koma í þriðja sinn, en Dominique hætti við á síðustu stundu.

Saksóknarar sýndu Kwai meðal annars myndir af Gisele þar sem hún lá meðvitundarlaus í rúminu heima hjá sér. Eftir að hafa séð myndirnar viðurkenndi hann að um nauðgun hefði verið að ræða og Gisele hafi vissulega verið án meðvitundar þegar brotin áttu sér stað.

Í umfjöllun Daily Mail kemur fram að aðeins 14 karlar hafi viðurkennt brot sín og játað að um nauðganir hafi verið að ræða. Aðrir hafa neitað ásökununum eða sakað hjónin um að hafa „platað“ þá til þátttöku.

Búist er við því að niðurstaða fáist í réttarhöldunum í desember næstkomandi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið