Það var í ágúst 1977 sem The Ohio State University‘s Big Ear útvarpssjónaukinn nam dularfulla merkjasendingu utan úr geimnum. Stjörnufræðingurinn Jerry Ehman skrifaði þá „Wow!“ á útprentun á merkinu sem sjónaukinn nam en hann var notaður við leit að merkjum frá vitsmunaverum á öðrum plánetum.
Í eina mínútu og 12 sekúndur þetta kvöld, nam sjónaukinn útvarpsbylgjur frá svæði nærri stjörnumerkin Bogamanninum. Merkið var 30 sinnum sterkara en bakgrunnshljóðin í geimnum og var á tíðninni 1.420 megahertz.
Vetni sendir frá sér útvarpsbylgjur á þessari tíðni og því töldu sumir stjörnufræðingar að geimverur myndu veðja á þessa tíðni til að reyna að koma á samskiptum við okkur jarðarbúa.
En Wow! merkið hefur aldrei aftur heyrst og ekki hefur verið hægt að skýra það út frá neinum þekktum náttúrufyrirbrigðum, þangað til hugsanlega núna.
Live Science segir að eftir því sem Abel Mendez, stjarneðlisfræðingur, segi þá megi hugsanlega rekja upptök Wow! merkisins til tilviljanakenndrar uppgötvunar á gífurlegum blossa sem gæti hafa valdið því að vetnisský sendi merkið frá sér.
Rannsókn hans og samstarfsfólks hans er nú aðgengileg á arXiv og hefur verið send til birtingar í vísindaritinu The Astrophysical Journal.
Mendez sagði að atburður af þessu tagi sé gríðarlega sjaldgæfur og það hafi komið honum gríðarlega á óvart að stjörnufræðingar hafi numið hann.
Niðurstaða rannsóknar hans og samstarfsfólks hans byggist á því að þau uppgötvuðu óvænt átta Wow! lík merki þegar farið var yfir gögn frá Arecibo stjörnuskoðunarstöðinni. Þau voru öll numin á tímabilinu frá febrúar til maí 2020 og vörðu í tvær til þrjár mínútur.
Hér er hægt að lesa áhugaverða umfjöllun um upprunalega Wow! merkið.