Það er kannski ekki svo hættulegt að sleppa því að drekka nóg af vatni í einn eða tvo daga en langvarandi vökvaskortur getur hafa alvarlegar afleiðingar. Vatn gegnir mikilvægu hlutverki í því að viðhalda jafnvægi í líkamanum, til dæmis hvað varðar hitastig hans og blóðþrýsting.
The News skýrir frá þessu og segir að til að tryggja að fólk fái nægan vökva, þá séu einfaldar aðferðir til að hámarka vatnsneysluna.
Settu þér markmið – Til að geta náð markmiði er mikilvægt að setja sér markmið. Þessi einfalda aðgerð getur verið mjög hvetjandi en um leið hjálpað til við að koma sér upp raunhæfum viðmiðum til að gera jákvæðar breytingar. Fullkomið markmið ætti að vera raunhæft, eitthvað sem er hægt að ná, hægt að mæla og með tímamörkum.
Fáðu þér margnota vatnsflösku – Að vera með vatnsflösku við hendina auðveldar þér að drekka vatn hvar og hvenær sem er. Óháð því hvort þú ert heima, í skóla eða vinnu, margnota flaska gerir út af við afsökunina um að þú þurfir að kaupa vatn. Þess utan er það umhverfisvænt að nota margnota flösku og hún er sífelld áminning um að fá sér sopa, að minnsta kosti þegar hún er innan seilingar.
Haltu þig við vatn -Forðastu orkudrykki og sykraða gosdrykki og haltu þig bara við hreint vatn. Sykraðir drykkir eru slæmir fyrir heilsuna og þeir eru líka dýrir. Íhugaðu hvort þú eigir kannski að skipta kaffibollanum út með tei eða vatni.
Drekktu vatn fyrir máltíðir – Einfalt ráð til að tryggja næga vatnsdrykkju er að fá sér alltaf eitt glas fyrir hverja máltíð. Þá virkar það eins og áminning og gerir að verkum að þú drekkur þrjú aukaglös af vatni á dag, það er ef þú borðar þrjár máltíðir á dag.
Settu bragð í vatnið – Það er líka allt í laga að setja smá bragð í vatnið til tilbreytingar. Það er til dæmis hægt að setja sítrónu út í eða agúrku.