fbpx
Fimmtudagur 26.september 2024
Pressan

Fjórir særðust þegar lögreglan skaut mann sem borgaði ekki fargjald í neðanjarðarlest

Pressan
Föstudaginn 20. september 2024 04:03

New York borg

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjórir særðust á sunnudaginn þegar lögreglan skaut mann sem hafði ekki greitt fargjaldið í neðanjarðarlestarkerfið í New York. Þetta átti sér stað um klukkan 15 í Brooklyn. Tveir lögreglumenn sáu mann láta hjá líða að greiða fargjaldið upp á 2,90 dollara.

Lögreglumennirnir gáfu manninum fyrirmæli um að stoppa en hann neitaði og sagði: „Ég drep ykkur ef þið hættið ekki að elta mig.“ Lögreglumennirnir sáu þá að hann var með hníf.

Sky News hefur eftir talsmanni lögreglunnar að lögreglumennirnir hafi fylgt manninum eftir inn í lestarvagn sem var á lestarstöðinni og hafi skotið tveimur skotum úr rafvopni en hvorugt hafi lagt manninn að velli. Því næst gekk maðurinn að lögreglumönnunum með hnífinn á lofti og skutu þeir þá báðir nokkrum skotum að honum.

Maðurinn, sem er 37 ára, fékk nokkur skot í sig. Hann liggur nú á sjúkrahúsi en er ekki í lífshættu.

Tæplega fimmtugur karlmaður, sem var í lestinni, varð fyrir skoti. Það hæfði hann í höfuðið og er hann í lífshættu. 26 ára kona hlaut minniháttar áverka þegar skot hæfði hana. Annar lögreglumaðurinn fékk skot í handarkrikann og annað í bakið en læknar telja að hann muni ná sér að fullu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“

Voru morðbræðurnir elskhugar? – „Þetta er ekkert annað en sárar ærumeiðingar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið

Karlar – Hvaða áhugamál eigið þið? – Þetta finnst konum minnst kynþokkafulla áhugamálið
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svartbjörn réðst á fullorðinn mann – Þá kom 12 ára sonurinn til sögunnar

Svartbjörn réðst á fullorðinn mann – Þá kom 12 ára sonurinn til sögunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þessi mynd hefur vakið mikla athygli – „Þetta er ekki ég!“

Þessi mynd hefur vakið mikla athygli – „Þetta er ekki ég!“