Málið hefur vakið mikið umtal í Bandaríkjunum, en eins og greint hefur verið frá hefur Colin verið handtekinn og ákærður fyrir aðild að harmleiknum. Gæti hann átt lífstíðarfangelsi 180 ára fangelsi yfir höfði sér.
New York Post fjallar um málið í dag en í umfjölluninni kemur fram að Colin hafi gefið drengnum byssuna í jólagjöf um síðustu jól.
Í umfjölluninni er haft eftir fjölskyldumeðlimum og þeim sem þekktu til fjölskyldunnar að Colin hafi ítrekað talað niður til sonar síns.
„Hann kallaði hann öllum illum nöfnum og lét hann heyra hluti sem enginn vill heyra,“ segir einstaklingur sem tengist fjölskyldu móðurfjölskyldu Colts. Nefndi hann orð eins og „sissy, pussy og bitch“ að því er segir í umfjöllun New York Post.
„Þetta voru orð sem voru notuð til að niðurlægja hann og draga úr því að hann væri nógu mikill karlmaður,“ segir fjölskyldumeðlimurinn og bætir við að Colin hafi þótt sonur sinn allt of „blíður og viðkvæmur“ og þess vegna hafi hann gefið honum byssu.
Colt hefur verið ákærður fyrir fjögur morð og verður réttað yfir honum líkt og um fullorðinn einstakling sé að ræða. Dauðarefsing er við lýði í Georgíuríki en vegna ungs aldurs Colts munu saksóknara ekki fara fram á hana.
Charles Polhamus, 81 árs móðurafi Colts, kallaði eftir því í gær að Colin yrði dæmdur til dauða vegna fjöldamorðanna. Ábyrgð hans væri mikil og hann hefði komið einstaklega illa fram við son sinn.