fbpx
Sunnudagur 04.ágúst 2024
Pressan

„Þetta er það sem veldur mígreni“ – Fundu „týndan hlekk“

Pressan
Laugardaginn 3. ágúst 2024 17:30

Mynd úr safni.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vísindamenn hafa lengi velt fyrir sér hvernig stendur á því að mígreni geti valdið því að sjúklingarnir sjá ljós og heyra hljóð sem eru ekki til staðar, sem sagt ofskynjanir, eða finna fyrir dofa eða náladofa. En nú telja vísindamenn sig hafa fundið svarið við þessu.

Live Science segir að í nýrri rannsókn, sem var gerð á músum, hafi vísindamenn uppgötvað áður óþekkta leið á milli heilans og úttaugakerfisins og gæti hún skýrt hvernig þessar ofskynjanir og mígreni tengjast.

Rúmlega einn milljarður manna fær mígrenikast/köst árlega og um fjórðungur þeirra fær fyrrgreindar ofskynjanir.

Vísindamenn vissu fyrir að þessar ofskynjanir tengjast „þunglyndi í heilaberkinum“ en það eru bylgjur óeðlilegrar virkni sem skella á heilanum og gera ákveðnar taugafrumur óvirkar tímabundið. Talið er að þessar bylgjur virki á einhvern hátt taugar, sem skynja sársauka, utan heilans, að hluta með því að senda efni í mænuvökvann en hann umlykur og gætir líffæra okkar.

En hvernig þessi efni komust til tauganna var ráðgáta en nú hafa vísindamenn fundi leið sem sumar þessara sameinda geta farið til að komast fram hjá vörnum heilans.

Í nýrri rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Science, kemur fram að vísindamenn rannsökuðu þessa leið sem efnið fer fram hjá vörnum heilans. Þeir komust að því að efnið getur aukið flæði mænuvökva á ákveðnum svæðum en það þýðir að meira af prótíni og öðrum sameindum berst þangað og það getur valdið verkjum og bólgum sem aftur virkjar þær taugar sem miðla sársaukatilfinningu. Það er þetta sem knýr mígreni og tengir ofskynjanirnar við höfuðverkinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 3 dögum

Rússar eru ragir við að nota sínar fullkomnustu orrustuþotur í Úkraínu

Rússar eru ragir við að nota sínar fullkomnustu orrustuþotur í Úkraínu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svipti sig lífi eftir að lögregla komst á sporið í 33 ára gömlu sakamáli

Svipti sig lífi eftir að lögregla komst á sporið í 33 ára gömlu sakamáli
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þrjár stúlkur látnar, 6, 7 og 9 ára: Nágranni varpar ljósi á hinn grunaða

Þrjár stúlkur látnar, 6, 7 og 9 ára: Nágranni varpar ljósi á hinn grunaða
Pressan
Fyrir 5 dögum

Sönn hetja berst fyrir lífi sínu – Réðst að hnífamanninum og var stungin

Sönn hetja berst fyrir lífi sínu – Réðst að hnífamanninum og var stungin
Pressan
Fyrir 5 dögum

Segist vita af hverju karlar halda framhjá konum sínum – „Ég er lögð yfir eldhúsborðið þegar hún er ekki heima“

Segist vita af hverju karlar halda framhjá konum sínum – „Ég er lögð yfir eldhúsborðið þegar hún er ekki heima“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Þetta eru bílarnir sem eru líklegastir til að ná 300 þúsund kílómetrum

Þetta eru bílarnir sem eru líklegastir til að ná 300 þúsund kílómetrum