fbpx
Miðvikudagur 28.ágúst 2024
Pressan

Nú er hægt að eignast leikmuni úr Friends

Pressan
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 07:00

Vinirnir njóta enn mikilla vinsælda.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilefni af því að 30 ár eru liðin frá því að þáttaröðin um Vini, Friends, hóf göngu sína verða leikmunir úr þáttaröðinni boðnir upp á netuppboði. Aðdáendum þáttanna gefst því tækifæri til að eignast raunverulega leikmuni og fatnað úr þáttunum.

Netuppboðið verður haldið 23. september en aðdáendur geta nú þegar boðið í suma af mununum. Daily Mail skýrir frá þessu.

Það er uppboðshúsið Julien‘s Auctions í Los Angeles sem sér um uppboðið.

„Á hverjum degi rennur Friends yfir skjá einhvers staðar í heiminum. Það sýnir hversu gríðarlega vinsælir þættirnir eru og þeir laða enn nýja aðdáendur að sér löngu eftir að síðasti þátturinn var sýndur,“ sagði David Goodman, forstjóri uppboðshússins.

Meðal þess sem hægt er að bjóða í er fatnaður, sem aðalleikararnir klæddust. Búningar sem Bruce Willis og Susan Sarandon klæddust. Einnig verða eftirlíkingar af upprunalegum leikmunum boðnar upp.

Meðal eftirlíkinganna er appelsínuguli sófinn úr Central Perk kaffihúsinu. Það er nú þegar búið að opna fyrir boð í hann og var hæsta boðið komið í 500 dollara í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Atvinnulaus fýlupúki

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt