fbpx
Miðvikudagur 28.ágúst 2024
Pressan

Konur með stór brjóst upplifa meiri árásargirni frá öðrum konum

Pressan
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 07:30

Það fylgja því greinilega margir ókostir að vera með stór brjóst.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrir margar konur með stór brjóst eru það ekki bara bakverkir, dýrir brjóstahaldarar og óumbeðin athygli frá ókunnugum sem plagar þær. Samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar Texas A&M International University þá upplifa konurnar meiri árásargirni af hálfu annarra kvenna en þær konur sem eru með lítil brjóst.

Höfundar rannsóknarinnar segja að ástæðan sé hugsanlega sú að konur með stór brjóst séu álitnar keppinautar. The Sun skýrir frá þessu.

Vísindamennirnir, undir forystu Ray Garza, telja að mikill áhugi karla á brjóstastærð kvenna, geri að verkum að konur séu mjög meðvitaðar um þennan hátt. „Líkamleg einkenni, sem hitt kynið sækist eftir, geta kynt undir samkeppni einstaklinga af sama kyni þegar kemur að því að komast í kynni við hugsanlega maka,“ segja vísindamennirnir.

Markmið rannsóknarinnar var að rannsaka hvort lögun brjósta og stærð hafi áhrif á orðræðu annarra kvenna, kvenna með stór brjóst. Rannsóknin hefur verið birt í vísindaritinu Sexes.

Garza segir að konur hafi haft meiri tilhneigingu til að gera lítið úr konum með stór brjóst, sérstaklega C- og D-skálar, miðað við konur með minni brjóst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Atvinnulaus fýlupúki

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt