fbpx
Miðvikudagur 28.ágúst 2024
Pressan

Deadpool-morðinginn dæmdur til dauða: „Ég hef aldrei séð neinn jafn illan og hann“

Pressan
Miðvikudaginn 28. ágúst 2024 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrítugur karlmaður, Wade Wilson, hefur verið dæmdur til dauða í Flórída í Bandaríkjunum fyrir morð á tveimur konum í október 2019. Wilson hefur fengið viðurnefnið „Deadpool-morðinginn“ vestan hafs þar sem hann ber sama nafn og karakter Ryan Reynolds í Deadpool-myndunum.

Wilson sýndi engin viðbrögð þegar dómari kvað upp dóminn yfir honum, en ekki liggur fyrir hvenær hann verður tekinn af lífi. Bað lögfræðingur hans eftir að dómur var kveðinn upp að hann yrði færður á dauðadeild svo fljótt sem kostur er.

Wilson var dæmdur fyrir að myrða tvær konur, hina 35 ára gömlu Kristine Melton og 43 ára gömlu Diane Ruiz.

Kristine Melton og Diane Ruiz.

Hann hitti Kristine fyrst á bar síðdegis 6. október 2019 og fór með henni heim. Þar þrengdi hann að öndunarvegi hennar með þeim afleiðingum að hún lést. Daginn eftir tókst honum að lokka Ruiz upp í bifreið sína þar sem hennar biðu sömu örlög og Kristine. Sögðu saksóknarar að hann hafi ákveðið að drepa til þess eins að drepa þennan dag.

Wilson er auðþekkjanlegur á húðflúrum sem hann er með á andlitinu, meðal annars hakakrossinn.

Á blaðamannafundi eftir að dómur var kveðinn upp í gær var saksóknarinn Amira Fox ómyrk í máli.

„Ég hef sinnt þessu starfi í 34 ár og ég verð að segja að ég haf aldrei séð neinn jafn illan og Wade Wilson,“ sagði hún. Aðstandendur Kristine og Diane sögðu að þeir ættu eftir að sjá Wade einu sinni enn, það er þegar dauðadómnum verður framfylgt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Atvinnulaus fýlupúki

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir

Abernethy perlan seld fyrir 17 milljónir
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur

Þóttist vera dáinn til að sleppa við meðlagsgreiðslur
Pressan
Fyrir 3 dögum

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi

Læknir segir að þetta eigi allir að gera í sturtunni til að draga úr stressi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar

Varð lukkunnar pamfíll eftir alvarlegt hjartaáfall og sannaði það fyrir myndavélarnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum

Svona er hægt að losna varanlega við illgresi með einföldu efni sem er til á flestum heimilum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt

Það er hægt að nota kaffikorg í ýmislegt