fbpx
Mánudagur 26.ágúst 2024
Pressan

Er hollt að drekka eitt glas af víni á dag?

Pressan
Mánudaginn 26. ágúst 2024 18:30

Er hollt að drekka vín daglega?

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vín hefur verið hluti af menningu mannkynsins í rúmlega 6.000 ár og líklega hefur hver heimshluti sínar eigin vínhefðir.

Þrátt fyrir að vín, þá er átt við rauðvín, innihaldi alkóhól, þá hafa vísindarannsóknir árum saman sýnt fram á að það geti haft jákvæð áhrif á heilsuna að drekka það, auðvitað í hófi en ekki óhófi. Í upphafi aldarinnar var töluvert fjallað um að víndrykkja væri góð fyrir hjartað.

En er þetta rétt og hvað þarf maður að hafa í huga þegar maður opna vínflösku? Tveir næringarfræðingar voru fengnir til að skoða þetta fyrir tímaritið Elle og niðurstaðan kemur kannski sumum á óvart.

Það leikur enginn vafi á að vín inniheldur efni sem geta verið góð fyrir líkamann. Pólýfenól, sem er í víni, og resveratrol, sem er í húð rauðra vínberja, geta minnkað magn LDL-kólesteróls og dregið úr líkunum á blóðtöppum.

Andoxunarefni vinna einnig gegn bólgum og geta verndað hjarta- og æðakerfið.

En hér enda góðu fréttirnar fyrir þá sem elska vín og vilja gjarnan fá sér glas öðru hverju því það er stórt EF!

Michelle Routhenstein, næringarfræðingur, sagði að vín sé ekki endilega besta uppsprettan til að ná sér í þessi efni. Magn andoxunarefna í víni getur verið mjög breytilegt og það getur dregið úr virkni þeirra ef þeirra er neytt í gegnum alkóhól.

Kailey Proctor, næringarfræðingur, sagði að engin vísindaleg gögn séu til sem sýni bein tengsl á milli alkóhólneyslu og heilbrigðara hjarta. Hún sagði einnig að áfengi, þar á meðal léttvín, hafi aukaverkanir, til dæmis geti neyslan aukið líkurnar á að fá krabbamein.

Lykilorðið þegar kemur að víni er hóf, að drekka það í hófi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Neitaði að trúa að móðir hans hefði framið sjálfsvíg – Eyddi öllum arfinum í að koma upp um morðingjann

Neitaði að trúa að móðir hans hefði framið sjálfsvíg – Eyddi öllum arfinum í að koma upp um morðingjann
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Í dag ætla ég að stinga alla“

„Í dag ætla ég að stinga alla“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Snjallt bragð rússa – Nýta lúxusbíla

Snjallt bragð rússa – Nýta lúxusbíla
Pressan
Fyrir 2 dögum

Elísabetu fannst Donald Trump „mjög dónalegur“ 

Elísabetu fannst Donald Trump „mjög dónalegur“ 
Pressan
Fyrir 3 dögum

Var í göngutúr þegar ungmennin réðust á hann – „Ég vil ekki búa hér lengur“

Var í göngutúr þegar ungmennin réðust á hann – „Ég vil ekki búa hér lengur“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að ótrúleg mistök hafi verið gerð þegar snekkjan sökk

Segir að ótrúleg mistök hafi verið gerð þegar snekkjan sökk