fbpx
Laugardagur 24.ágúst 2024
Pressan

Snjallt bragð rússa – Nýta lúxusbíla

Pressan
Laugardaginn 24. ágúst 2024 13:30

Mynd:EPA

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússneski tölvuþrjótahópurinn Fighting Ursa hefur á snjallan hátt nýtt sér auglýsingar fyrir rándýra Audi bíla til að blekkja háttsetta aðila til að ýta á hlekki sem eru í meira lagi vafasamir og eiginlega bara hættulegir hvað varðar tölvuöryggi.

Það er svo sem ekki oft tilefni til að hrósa rússneskum tölvuþrjótum en það verður nú samt sem áður að taka hattinn ofan fyrir hugmyndaauðgi þeirra þegar kemur að því að blekkja fólk.

Í nýrri rannsókn frá tölvuöryggisfyrirtækinu Palo Alto Network kemur fram Fighting Ursa hafi nýtt sér auglýsingar fyrir Audi bíla til fá háttsett fólk, sérstaklega diplómata, til að ýta á tengil sem inniheldur óværu sem kemur sér fyrir í tölvu viðkomandi.

Fighting Ursa er vel þekktur tölvuþrjótahópur sem gengur einnig undir nöfnunum APT28, Fancy Bear og Sofacy.

Palo Alto segir að hópurinn starfi á vegum rússnesku leyniþjónustunnar og virðist hafa notað Audi trixið síðan í mars á þessu ári.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Eldgosið í jafnvægi
Pressan
Fyrir 3 dögum

Sænskur dauðalisti í dreifingu á samfélagsmiðlum

Sænskur dauðalisti í dreifingu á samfélagsmiðlum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Illræmdur glæpaforingi grunaður um 23 morð

Illræmdur glæpaforingi grunaður um 23 morð
Pressan
Fyrir 4 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum
Pressan
Fyrir 5 dögum

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“
Pressan
Fyrir 5 dögum

Tíu ára gamlir fimmburar dóu í árás Ísralesmanna

Tíu ára gamlir fimmburar dóu í árás Ísralesmanna