fbpx
Laugardagur 24.ágúst 2024
Pressan

„Í dag ætla ég að stinga alla“

Ritstjórn Pressunnar
Laugardaginn 24. ágúst 2024 18:30

Skilti frá minningarstund vegna árásarinnar en á skiltinu stendur Warum sem þýðir af hverju. Mynd: Sascha Schuermann/Getty Images

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þessi orð hér að ofan er maður sagður hafa látið falla þegar hann stakk þrjár manneskjur til bana á tónlistarhátíð í borginni Solingen í Þýskalandi í gærkvöldi og særði átta þar af fjóra lífshættulega. Fimmtán drengur hefur verið handtekinn grunaður um tengsl við árásina en árásarmannins sjálfs er enn leitað.

Þetta kemur fram í umfjöllun Mirror.

Stakk maðurinn fólk af handahófi.

Vitni segjast hafa heyrt manninn segja þessi orð við drenginn.

Drengurinn er grunaður um að hafa vitað með nokkurra klukkustunda fyrirvara að maðurinn ætlaði að fremja árásina en ekki tilkynnt lögreglu um hvað var í vændum.

Lögreglan leitar nú mannsins ákaft.

Hátíðin var haldin í tilefni af 650 ára afmæli borgarinnar.

Hin látnu voru kona og tveir karlmenn, öll á sextugsaldri.

Ekki er talið útilokað að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Mannsins er eins og áður segir leitað en einnig hefur lögreglan til rannsóknar hvort hann hafi haft fleiri vitorðsmenn en drenginn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fyrrum MMA-bardagamaður grunaður um morð – Var að hefna dauða sonarins

Fyrrum MMA-bardagamaður grunaður um morð – Var að hefna dauða sonarins
Pressan
Fyrir 2 dögum

Eftirlýstur fyrir morð í tvo áratugi – Starf hans kom lögreglunni í opna skjöldu

Eftirlýstur fyrir morð í tvo áratugi – Starf hans kom lögreglunni í opna skjöldu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Týnd skæri komu af stað allsherjar uppnámi

Týnd skæri komu af stað allsherjar uppnámi
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sonur rokkgoðsagnar grunaður um hrottaleg morð

Sonur rokkgoðsagnar grunaður um hrottaleg morð