fbpx
Fimmtudagur 22.ágúst 2024
Pressan

Segja að Bill Gates sé grjótharður yfirmaður

Pressan
Fimmtudaginn 22. ágúst 2024 07:00

Bill Gates þykir harður og kröfuharður yfirmaður. Mynd/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir fyrrum starfsmenn Bill Gates skýra frá óþægilegum samskiptum sínum við hann, þegar þeir störfuðu hjá honum, í nýrri bók og segja að hann sé grjótharður yfirmaður sem hafi oft gert starfsfólk sitt dauðskelkað.

Flestir hafa eflaust prufað að vera með yfirmann sem er harður í horn að taka og strangur en miðað við lýsingarnar í nýju bókinni þá virðist Gates vera grjótharður yfirmaður sem hlífir engum.

Bókin er skrifuð af Anupreeta Das, blaðamanni hjá New York Times, en í henni er fjallað um eitt og annað tengt auðjöfrinum.

„Hann er erfiðasti maður í heimi þegar kemur að því að afhenda honum eitthvað skriflegt. Hann getur rennt yfir það á leifturhraða og bent á að það sem maður skrifaði í neðanmálsgrein á síðu níu passi ekki við það sem stendur í neðanmálsgreininni á síðu 28,“ segir fyrrum starfsmaður hjá Bill og Melinda Gates Foundation í bókinni. New York Post skýrir frá þessu.

Bill and Melinda Gates Foundation heitir nú Gates Foundation en nafninu var breytt í kjölfar skilnaðar hjónanna í kjölfar orðróma um framhjáhald Bill og að hann hefði verið viðriðinn mál barnaníðingsins Jeffrey Epstein.

Í bókinni er haft eftir fyrrum starfsmönnum Gates að það hafi virst henta honum vel að vera einráður stjórnandi og sumir líkja honum við Lúðvík fjórtánda, Frakkakonung. „Fundir með honum, voru svolítið eins og þetta væri konungur með hirð, þar sem Gates var Lúðvík fjórtándi og starfsfólkið hirðin sem hneigði sig fyrir honum í Versölum í von um að hljóta viðurkenningu hans,“ segir í bókinni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum

Fimm barna móðir bitin til bana af hundinum sínum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum

Dómara vikið frá störfum – Lét handjárna ungling sem svaf í dómsalnum
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“

Trump saknar Biden og heldur áfram að velta fyrir sér útliti Harris – „Ég er miklu myndarlegri en hún“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Tíu ára gamlir fimmburar dóu í árás Ísralesmanna

Tíu ára gamlir fimmburar dóu í árás Ísralesmanna
Pressan
Fyrir 3 dögum

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós

Þvert á það sem talið var urðu börn almennt ekki mjög veik af COVID-19 – Nú er ástæðan ljós
Pressan
Fyrir 4 dögum

Hugsanlega sleppur Los Angeles við verstu áhrif stóra skjálftans

Hugsanlega sleppur Los Angeles við verstu áhrif stóra skjálftans
Pressan
Fyrir 4 dögum

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni

Þess vegna er betra að sofa á vinstri hliðinni
Pressan
Fyrir 4 dögum

„Augasteina“ plánetan gæti verið byggileg

„Augasteina“ plánetan gæti verið byggileg