Tveggja ára sonur hennar náði þá í hlaðna skammbyssu sem var á sófa í stofunni og skaut fjögurra ára gamla systur sína til bana. Móðirin var fundin sek um morð af fyrstu gráðu og var talin bera alla ábyrgð á því hvernig fór. Mun hún ekki geta sótt um reynslulausn fyrr en eftir 25 ár.
Mariann bar vitni fyrir dómi þar sem hún lýsti því að hún hafi fjarlægt skammbyssuna úr skúffu á heimilinu þar sem hún geymdi meðal annars bleyjur. Sagðist hún hafa verið á leið út með börnin og viljað tryggja að hún gleymdi engu. Fjögurra ára dóttir hennar hafi „truflað“ hana með því að biðja hana um að taka mynd af sér og þá hafi drengurinn teygt sig í byssuna og skot hlaupið úr henni.
Saksóknarar bentu á það fyrir dómi að hlaðin byssan hafi verið á sófanum í að minnsta kosti 12 mínútur áður en drengurinn, sem var að verða þriggja ára, teygði sig í hana. Móðirin hafi sýnt af sér stórkostlegt gáleysi að skilja hlaðna byssuna eftir á glámbekk.
Í frétt AP kemur fram að Mariann hafi kvartað undan lögmanni sínum á meðan málið var fyrir dómi. Hvatti hann hana til að hafna samkomulagi sem henni bauðst um að játa sök í málinu gegn því að fá 10 ára fangelsisdóm. Mariann er komin með nýjan lögmann og hefur hann farið fram á að ný réttarhöld fari fram í málinu.