Denver7 skýrir frá þessu og segir að Sayers hafi ætlað að drepa manninn til að hefna fyrir dauða sonar síns. Sá sem var skotinn til bana er talinn hafa verið vinur manns sem myrti soninn, Lumumba Sayers, í ágúst á síðasta ári.
Sayers yngri var tók þátt í MMA-bardögum eins og faðir hans og barðist gegn hinu mikla ofbeldi sem fylgir skotvopnaeign Bandaríkjamanna. Hann var skotinn til bana þann 19. ágúst 2023 en fjórir voru skotnir í sömu skotárás.
Hinn grunaði í málinu, Tyrell Braxton, var handtekinn mánuði síðar og ákærður fyrir morð en málinu var vísað frá.
Sayers eldri barðist gegn skotvopnaofbeldi eins og sonur hans og studdi fjölda samtaka sem berjast fyrir hinu sama.