Bandarísk yfirvöld hafa nú ákært hann fyrir að koma ólöglega inn í landið um miðjan maí. Þegar hann gerði það gáfu yfirvöld honum fyrirmæli um að mæta til skýrslutöku á ákveðnum degi og leyfðu honum að fara frjálsum ferða sinna. Í byrjun júlí gáfu perúsk stjórnvöld út alþjóðlega handtökuskipun á hendur honum fyrir morð.
Fimm vikum síðar var hann handtekinn í Endicott í New York að sögn CNN. Talsmaður innflytjendayfirvalda sagði að bandarísku samfélagi stafi hætta af Torres-Navarro og ekki verði liðið að New York verði samastaður hættulegra aðila.
Fyrrum unnusta hans, Mishelle Sol Ivanna Otríz Ubillús, var einnig handtekin. CNN segir að hún hafi leikið stórt hlutverk í Los Killers. Hún var einnig mjög virk á TikTok og nýtti hvert tækifæri til að sýna lúxuslífsstíl sinn.
Perúskir fjölmiðlar segja að Torres-Navarro hafi flúið land eftir að hafa drepið fyrrum lögreglumann og skotið á annan mann á veitingastað í mars. AP fréttastofan hefur eftir talsmanni lögreglunnar að hann sé stórhættulegur og sé grunaður um 23 morð. Hann sagði einnig að sum fórnarlambanna hafi verið leiðtogar annarra glæpagengja og önnur hafi verið ættingjar þeirra. Þetta hafi verið liður í verkefni Torres-Navarro að komast til æðstu metorða í glæpagenginu sínu.