En Riano var horfinn og var eins og jörðin hefði gleypt hann. Þar til nýlega en þá tókst mexíkósku lögreglunni að hafa uppi á honum og handtaka.
ZBC News skýrir frá þessu og segir að Riano hafi verið handtekinn bænum Zapotitlan Palmas, þar sem hann ólst upp. Það er engin furða að starf hans hafi komið lögreglunni í opna skjöldu, því hann starfaði sem lögreglumaður í bænum!
Lögreglan hafði leitað hans í öll þessi ár en í janúar á þessu ári herti hún leitina til muna og fór meðal annars að fylgjst með samfélagsmiðlum í von um að finna vísbendingar um hvar hann héldi sig.
Riano skildi eiginkonu sína og þrjú börn eftir í Hamilton þegar hann flúði þaðan 2004.
Hann situr nú í gæsluvarðhaldi í Butler County.